Konurnar í Flokki fólksins stíga fram: Sagðar of vitlausar og jafnvel geðveikar

„Í kjölfar yfirlýsinga varaformanns Flokks fólksins í morgun höfum við sem erum þolendur alls þessa ofbeldis sem um er rætt, ákveðið að stíga fram og freista þess að útskýra líðan okkar og ömurlega reynslu af samskiptum við þessa ónefndu karlaforystu og aðstoðarmanna þeirra á frá því snemma í vor.“

Þetta kemur fram í yfirlýsingu sem Málfríður Þórðardóttir, Tinna Guðmundsdóttir og Hannesína Scheving Virgild Chester hafa sent frá sér. Eins og Hringbraut greindi frá í morgun hefur Guðmundur Ingi Kristinsson, varaformaður Flokks fólksins, óskað eftir stjórnarfundi hjá flokknum vegna ásakana sem komið hafa fram í flokknum.

Sjá einnig: Uppnám í Flokki fólksins: Guðmundur Ingi kallar til fundar vegna ömurlegrar framkomu

Mér hafa ítrekað borist fregnir af því að kvenleiðtogar okkar og sjálfboðaliðar á Akureyri hafi mátt sæta ótrúlega niðrandi og fyrirlitlegri framkomu síðustu mánuði frá ákveðnum trúnaðarmönnum flokksins,“ sagði Guðmundur Ingi og bætti við að talað væri um sífellt og stöðugt andlegt ofbeldi, hótanir og jafnvel kynferðislegt áreiti. Guðmundur segir að hvorki hann né flokkurinn muni sætta sig við ofbeldi, einelti, hótanir eða kynferðislegt áreitni.

Lítilsvirtar og hunsaðar

Í kjölfar yfirlýsingar Guðmundar ákváðu Málfríður, Tinna og Hannesína að stíga fram og segja frá sinni hlið.

„Eftir síðustu bæjarstjórnarkosningar þar sem flokkurinn okkar vann stórsigur var mikill hugur í okkur öllum, jákvæðni og þakklæti til allra þeirra sem gáfu okkur sitt dýrmæta atkvæði og um leið tækifæri til að koma kærleiksríkum góðum málstað Flokks fólksins á framfæri. Við ætluðum að vinna af krafti við að byggja upp félagsstarf flokksins okkar hér heima. Einnig ætluðum við að hafa samráð varðandi öll bæjarráðsmál með því að styðja og styrkja hvert annað.  En í ljósi reynslunnar af samskiptum við karlkynsforystu flokksins og aðstoðarmanna hefur þessi góði vilji okkar frekar litast af draumsýn en veruleika,“ segir í yfirlýsingunni.

„Efstu konur á lista flokksins voru sífellt lítilsvirtar og hunsaðar. Á trúnaðarfundum flokksins vorum við sagðar of vitlausar eða jafnvel geðveikar til að vera marktækar. Sumar okkar máttu sæta kynferðislegu áreiti og virkilega óviðeigandi framkomu til viðbótar við að vera ekki starfinu vaxnar og geðveikar.“

Yfirgaf fundinn grátandi

Í yfirlýsingunni kemur fram að þann 10. september hafi oddviti flokksins boðað til fundar á heimili sínu þar sem þær töldu að markmiðið væri að koma á ró og vinnufriði.

„Á fundinum mætti okkur mikil andúð og kuldi og yfirgaf varabæjarfulltrúi hann grátandi eftir tíu mínútur.  Oddvitinn dró þá fram bréf sem hann las upp og hótaði að birta. Bréf sem var hlaðið rógburði, rangfærslum og hótunum um að við misstum starfsleyfi okkar sem heilbrigðisstarfsmenn ef við létum ekki að stjórn.  Alla daga síðan hafa þessar hótanir verið viðvarandi og umræddu hótunarbréfi dreift.“

Í yfirlýsingunni frá Málfríði, Tinnu og Hannesínu kemur fram að þetta „samstarf“ hafi verið taugatrekkjandi og valdið þeim öllum ómældri vanlíðan og kvíða.

„Að lokum viljum við segja þetta:

Það er okkur sárara en tárum taki að þurfa að stíga fram og ræða opinberlega um þá erfiðleika og þau innanflokksátök sem við höfum verið að ganga í gegnum. Ástæðan að sjálfsögðu sú að við viljum ekki á neinum tímapunkti skaða flokkinn og allt það góða fólk innan Flokk fólksins sem er með hjartað á réttum stað. En nú þegar varaformaðurinn okkar hefur stígið fram og ætlar augljóslega að taka málið föstum tökum, finnst okkur ekkert annað koma til greina en að segja okkar sögu.“