Björgunarsveitarmenn frá björgunarsveitinni Ingunni á Laugarvatni og Tintron í Grímsnesi komu konu til bjargar snemma í morgun eftir að hún villtist af leið.
Fréttablaðið greinir frá því að konan hafi gist í snjóhúsi vestan við Kringlumýri á Lyngdalsheiði í nótt ásamt hópi af samnemendum sínum og kennara úr Háskóla Íslands, en um var að ræða áfanga í skólanum þar sem hluti af náminu er að gista í snjóhúsi.
Eins og landsmenn vita hefur töluvert snjóað síðustu daga og hefur veður ekki verið upp á marga fiska. Ákvað konan að leggja af stað í bílinn sinn í nótt en ekki vildi betur til en svo að hún villtist af leið.
„Þetta er hluti af námskeiði eða áfanga hjá Háskóla Íslands, hún var í hópi fólks þarna. Að okkar mati var hún ekki eins vel búin og aðrir. Við höfum verið í sambandi við kennarann sem er mjög reyndur,“ segir Haraldur Helgi, formaður Björgunarsveitarinnar Ingunnar, við Fréttablaðið. Blindbylur var á svæðinu og hugðist konan leita skjóls í bifreið sinni þegar hún villtist.
Haraldur segir konuna hafa getað gefið upp staðsetningu sína sem einfaldaði björgunina.
„Við þveruðum bíl á veginum og settum öll ljós í áttina að henni, við vissum hvar hún var, hún gaf upp staðsetningu. Hún gat séð bjarmann frá okkur og svo gekk einn félagi okkar í áttina að henni, hún var með pínulitla ljóstýru á sér. Þetta hefði getað farið mun verr,“ segir Haraldur.
Nánar á vef Fréttablaðsins.