Konráð varar við tali um Leiðréttingu 2.0 – Friðrik spáir auðlegðarskatti

Hagfræðingurinn Konráð Guðjónsson segir að það þurfi að setja fréttir ársins í fyrra í samhengi við tal um aðra leiðréttingu, Leiðréttingu 2.0, þegar vextir hækka á næstunni.

„Það eru 7 mánuðir síðan sjálfur seðlabankastjóri sagði fólki að festa vexti og margir óttuðust að verðbólgan yrði þrálát og mögulega meiri. Lægstu vextir Íslandssögunnar gátu eiginlega bara hækkað,“ segir hann á Twitter,

„Svo eru reyndar smá aðrir en mikilvægir sálmar hvernig var á síðasta ári búist við að verðbólga myndi hjaðna á síðasta ári með lágum vöxtum, erlendum verðhækkunum, engum vísbendingum um rólegri fasteignamarkað, blússandi hagvexti og mjög slökum ríkisfjármálum.“

Friðrik Jónsson, formaður BHM, segir að hér þurfi að fara að huga að skattahækkunum á peninga í umferð:

„Vöxtur peningamagns í umferð úr hófi fram síðastliðin ár. Nokkuð annað að gera en að hækka skatta á fjármagn - bæði arðgreiðslur og eignir?,“ sagði hann.

Konráð sagði að slíkt hljóti að vera sprell, Friðrik hafnaði því:

„Ég hugsa að endurupptaka auðlegðarskatts muni aftur komast á dagskrá - án sprells. Vittu til.“