Konráð S. Guðjónsson, hagfræðingur og núverandi efnahagsráðgjafi Samtaka atvinnulífsins, virðist vera orðinn býsna leiður á að vera rangfeðraður í fréttum.
Konráð gerir þetta að umtalsefni á Twitter og birti nokkur skjáskot máli sínu til stuðnings þar sem hann er rangfeðraður í fréttum hinna ýmsa fjölmiðla. Einhverra hluta vegna er hann sagður Gíslason þegar hann er sannarlega Guðjónsson.
„Á endanum mun ég sjálfur trúa því að faðir minn heiti Gísli,“ segir Konráð og birtir til dæmis skjáskot úr frétt Mbl.is þar sem hann er sagður heita Konráð S. Gíslason. Á vef Eiríks Jónssonar er hann líka sagður heita Konráð Gíslason sem og á vef Miðjunnar.
Þá er hann sagður heita Konráð V. Gíslason í einni frétt RÚV.
Á endanum mun ég sjálfur trúa því að faðir minn heiti Gísli https://t.co/XG1HoowULw pic.twitter.com/UegzMUisHG
— Konráð S. Guðjónsson (@konradgudjons) November 28, 2022