Kona stefnir Bjarna Ben fyrir að hafa verið neydd í sótt­varnar­hús

Kona að nafni Kinga Stanelé, sem býr í Reykja­nes­bæ, hefur stefnt ríkinu og krafist einnar milljónar króna í miska­bætur fyrir að hafa með ó­lög­legum hætti verið neydd til að dveljast í sótt­varnar­húsi við komu til Ís­lands frá Pól­landi. Þetta kemur fram í fréttDV.

Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, er skráður í fyrir­svari fyrir ís­lenska ríkið í málinu en aðal­með­ferð fer fram í Héraðs­dómi Reykja­víkur á morgun.

Í frétt DV segir að Kinga kom til landsins frá Pól­landi 2. apríl 2021. Við komuna til landsins var hann gert að sæta sótt­kví á Foss­hóteli í Þórunnar­túni 1 á grund­velli þá­gildandi sótt­varna­reglu­gerðar. Kinga mót­mælti þessu og sagðist til­búin að vera sótt­kví heima hjá sér. Ekki var tekið til­lit til mót­mæla hennar og hún flutt með rútu frá Kefla­víkur­flug­velli til Reykja­víkur, að Þórunnar­túni.

„Tveimur dögum síðar krafðist lög­maður Kinga þess að á­kvörðunin um að hún ætti að dveljast í sótt­varnar­húsi yrði borin undir héraðs­dóm. Fyrir héraðs­dómi voru felldar úr gildi stjórn­valds­á­kvarðanir þess efnis að far­þegar til landsins yrðu að dveljast á sótt­varna­hóteli því ekki þótti vera laga­stoð fyrir þessari grein í reglu­gerðinni.“

Konan telur að brotið hafi verið á á­kvæði stjórnar­skrárinnar um enginn verði sviptur frelsi nema með lögum og að hafi maður verið sviptur frelsi að ó­sekju skuli hann eiga rétt til skaða­bóta.

Sam­kvæmt stefnu málsins sem DV hefur undir höndum byggir hún kröfu sína um miska­bætur einnig á því að hún hafi verið reiðu­búin að dveljast í heima­sótt­kví og hafi gert ráð­stafanir til þess. En þess í stað hafi hún verið vistuð á litlu hótel­her­bergi þar sem mögu­leikar hennar til að komast undir bert loft voru veru­lega tak­markaðir.

Einnig hafi henni verið meinað að fara í göngu­túr sér til heilsu­bótar þrátt fyrir að það hafi staðið öðrum til boða.

Hún var vistuð í tvo sólar­hringa og fer fram á eina milljón.