Kona sem Sonja hefur aldrei séð á heimili sínu skapar flækju: „Ótrúlegt að þetta skuli vera hægt“

„Það er alveg ótrúlegt að þetta skuli vera hægt. Ég bara á ekki til orð,“ segir Sonja Arnarsdóttir sem búsett er á Selfossi. Sonja komst að því fyrir skemmstu að kona, sem hún hefur aldrei séð og þekkir ekki neitt, hafði skráð lögheimili sitt heima hjá henni.

Sonju var eðlilega brugðið vegna þessa og ákvað hún í morgun að láta reyna á mátt Facebook við að hafa upp á konunni. Í samtali við Hringbraut segir Sonja að henni hafi tekist það nú eftir hádegi. Vill Sonja að konan, sem ber erlent nafn og er á þrítugsaldri, fylli út pappíra þess efnis að hún sé ekki búsett á heimili hennar.

Langt og strangt ferli

„Í mínu tilfelli þá bý ég ein og er með uppgefna leigu. Það skerðist ef ég er með einhverja hluti í gangi; ég þarf að gefa upp hvort það búi börn hjá mér og fylgja settum reglum,“ segir Sonja sem hafði samband við Þjóðskrá Íslands í morgun og skilaði inn gögnum þess efnis að konan búi ekki heima hjá henni.

Hjá Þjóðskrá fékk hún þau skilaboð að ferlið, að koma konunni af heimilinu, ef svo má segja, taki rúman mánuð. Sonja segir að ferlið sé þannig að konan fái sent bréf sem, eðli málsins samkvæmt, kemur heim til Sonju og mun því líklega aldrei rata til umræddrar konu.

„Svörin eru þau að ég á að fara með bréfið aftur á pósthúsið og það er endursent á Þjóðskrá,“ segir Sonja. „Þetta ferli tekur nokkrar vikur og, eins og starfsmaður Þjóðskrár orðaði það við mig þá eru þetta vinnu- og úrvinnslureglur sem farið er eftir.“ Að þessu ferli loknu verður konan líklega skráð erlendis ef hún finnst ekki.

Segist bara ætla að tékka á þessu

Sonja segist hafa haft upp á konunni nú eftir hádegi en fátt hafi verið um svör. „Hún segist bara ætla að tékka á þessu,“ segir Sonja sem fékk ábendingu frá fyrrverandi vinnufélaga konunnar hér á landi.

Sonja furðar sig á því að þetta skuli yfir höfuð vera hægt, að skrá lögheimili sitt hvar sem er. „Það er náttúrulega fáránlegt að hver sem er geti skráð sig með lögheimili heima hjá manni. En samkvæmt íslenskum lögum þá má þetta.“

Atli Már Gylfason blaðamaður framkvæmdi til dæmis tilraun árið 2017 þar sem hann flutti lögheimili sitt á Bessastaði. Þetta gerði Atli til að sýna að hver sem er getur flutt lögheimili sitt hvert sem er. „Þannig að í nokkra daga fékk Guðni Th. öll innheimtubréfin mín,“ sagði Atli Már.

DV fjallaði svo árið 2017 um íbúa í litlu húsi með þremur íbúðum í Nökkvavogi, Guðnýju Maríu Arnþórsdóttur. Tólf Litháar voru skráðir með lögheimili í einni íbúðinni en Guðný hafði aldrei séð umrædda menn. Þangað höfðu meðal annars komið stefnuvottar sem gripið höfðu í tómt þar sem mennirnir voru í raun búsettir annars staðar.