„Maður var búinn að fylgjast með þessu allt árið og eins og margir lýsa þessu, þetta er alltaf einhvern veginn í kringum mann en ég þekkti ekkert eitthvað marga sem höfðu fengið þetta. Þetta var einhvern veginn ekki búið að höggva nærri heimahögum. Svo bara þarna í lok nóvember þá smitast frúin. Og sko „you can't live with them, can't live without them“, þannig að hún ber þetta heim,“ sagði Jóhannes Ásbjörnsson, best þekktur sem Jói, í Síðdegisþættinum á K100í gær.
„Hún ber veiruna í hús sú gamla og veiktist aðeins og var alveg með netta flensu í nokkra daga. Við förum öll í sóttkví þarna 25. nóvember og við létum mæla okkur strax, við eigum þrjú börn og allir clean,“ sagði hann. „Þannig að við hugsuðum: „jæja, bara halda kellingunni inni í herberginu og hleypa henni ekkert út og bara sigla í gegnum þetta“. En svo bara nokkrum dögum seinna þá fór mér að líða eitthvað illa og ég fór eitthvað að veikjast og svo bara búmm og þá steinlá ég í fimm sólarhringa.“
Jói hélt að hann væri orðinn góður eftir þessa fimm sólarhringa, annað kom á daginn. Fór hann að taka til í geymslu uppi á háalofti, svo um kvöldmat var hann orðinn slappur, sagði hann þá: „Heyrðu, það er eitthvað að, og ég lagðist kominn með 39,5 bara á klukkutíma og þá kom þetta. Þá komu sko sex sólarhringar og ég mallaði bara í 40 stigum allan tímann.“
Jói var illa haldinn, hélt hann sig í svokölluðum „mancave“ á heimili hans. Konan hans kom að honum í svitabaði og óráði eina nóttina:
„Hún vaknar þarna eina nóttina og heyrir eitthvað svona skrítið niðri og kemur niður og þá er ég bara með óráði þvaðrandi og ég man ekkert eftir þessu og mér varð tíðrætt um einhverja þríhyrninga sem pössuðu ekki saman og var ósáttur við það,“ sagði hann. Hringdi hún þá á hjálp: „Þeir tóku blóðprufu og gerðu röntgen á lungum og mettun í blóði, það var ekkert að mér og ég fór aftur heim, þetta bara gerir söguna betri.“
Jói losnaði úr einangrun fjórum dögum fyrir jól en hvorugt þeirra hjóna fann bragð af jólamatnum.