Kona Elliða minnti hann á aldurinn þegar hann vaknaði í morgun

Elliði Vignisson, bæjarstjóri í Ölfusi, heldur upp á 53 ára afmælisdaginn sinn í dag. Eins og þeir sem þekkja til Elliða vita er hann mikill húmoristi og sló hann á létta strengi á Facebook-síðu sinni í morgun.

„Þessi afmælisdagur byrjaði á því að konan mín benti mér á að ég væri núna jafn gamall og þýski lögreglumaðurinn Derrick var þegar hún sá hann fyrst í sjónvarpi. Svo kyssti hún mig ofur mjúkt,“ sagði Elliði en margir muna eftir þessum sígildu þýsku þáttum sem voru sýndir á árunum 1974 til 1998.

Þessi áminning eiginkonu Elliða virðist hafa verið ákveðinn skellur fyrir hann ef marka má færslu hans.

„Ég ætla að bregðast við þessum orðum hennar með því að hjóla meira á motokrosshjólunum, fara oftar beint af djammi í sjósund og borða eingöngu prinspóló og appelsínudjús í morgunmat.“