Lögreglan á Norðurlandi eystra fékk tilkynningu laust eftir klukkan 2 í nótt um að kona á áttræðisaldri hefði farið að heiman frá sér á Akureyri, líklega um miðnætti, og ekki skilað sér heim aftur.
Í tilkynningu sem lögregla birti á Facebook-síðu sinni kemur fram að konan væri alzheimer-sjúklingur og væri því ekki líkleg til að rata heim aftur.
Að sögn lögreglu hófst strax eftirgrennslan eftir konunni af hálfu lögreglu og þá voru björgunarsveitir í Eyjafirði sem og Þingey ræstar út til aðstoðar og leitar auk þess sem aðgerðastjórn virkjuð.
„Leitað var með skipulögðum hætti út frá heimili viðkomandi og var það gert með fjölda björgunarsveitarmanna, lögreglumanna, drónum og leitarhundi. Þó að kalt hafi verið í veðri þá voru aðstæður til leitar ákjósanlegar og gátu leitarmenn m.a. fylgt líklegum sporum í snjónum frá heimili viðkomandi,“ segir í skeyti lögreglu.
Það var svo laust fyrir klukkan sjö í morgun að konan fannst heil á húfi og var hún enn á gangi. Að sögn lögreglu var húin búin að ganga rúmlega þrjá kílómetra frá heimili sínu.
Konan var flutt til aðhlynningar á Sjúkrahúsið á Akureyri.
„Þökkum við öllum sem að þessu verkefni komu og sýnir það enn og aftur samtakamáttinn sem er til staðar þegar þörf er á,“ segir að lokum í skeyti lögreglu.
Talið er að konan, sem er alzheimer-sjúklingur, hafi farið að heiman um miðnætti og ekki skilað sér aftur. Konan fannst snemma í morgun og segir lögregla málið sýna samtakamáttinn sem er til staðar þegar þörf er á.