Aðstandendur fertugs karlmanns sem lést í júlí í fyrra hyggjast fara í skaðabótamál vegna andlátsins. Fréttablaðið fjallar um málið á forsíðu sinni í dag en maðurinn hafði heimsótt Heilbrigðisstofnun Suðurnesja í tvígang daginn áður en hann lést.
Í fréttinni kemur fram að maðurinn hafi farið á bráðamóttöku HSS í tvígang daginn fyrir andlát sitt, síðdegis og um kvöld, og kvartað undan sárum brjóstverk með leiðni upp í háls og doða niður í fótlegg. Í bæði skiptin var maðurinn sendur heim án þess að sneiðmynd væri tekin.
Það var svo daginn eftir að maðurinn, sem var fertugur, fannst látinn á baðherbergisgólfinu heima hjá sér. Hann lætur eftir sig eiginkonu og tvö börn, 6 og 12 ára. Í frétt Fréttablaðsins kemur fram að maðurinn hafi hringt fimm sinnum á heilsugæsluna daginn sem hann lést en aðstandendur komu að honum látnum á baðherbergisgólfinu með farsíma í hendinni.
Nánar um málið í Fréttablaðinu í dag.