Jóhannes Þór Skúlason, framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar, er kominn heim af spítala eftir viðbrögð ónæmiskerfisins við AstraSeneca bóluefninu. Hann greinir frá þessu í léttri Facebook færslu.
Eins og Hringbraut greindi frá neyddist Jóhannes til að dvelja á spítala um helgina, sjálfa Júróvisjón helgina. Jóhannes er líklega einn þekktasti Júrónörd landsins en hann var hvergi banginn um helgina eins og greint var frá.
„Kominn heim eftir nokkurra daga dvöl í faðmi frábærs starfsfólks Landspítalans á bráðadeild í Fossvogi og á 11G á Hringbraut. Innilegar þakkir fyrir mig,“ skrifar þakklátur Jóhannes á Facebook.
„Búið að endurstilla systemið eftir að mótefnaviðbragðið eftir bólusetninguna misskildi aðeins blóðflögurnar, hélt þær væru kókópöffs. Allt á réttri leið núna. Takk fyrir allar góðu og innilegu kveðjurnar kæru vinir.“