Svokölluð rafhlaupahjól hafa verið gríðarlega vinsæl hér í höfuðborginni síðustu misseri, en þau eru gjarnan kennd við fyrirtækin Hopp og Zolo.
Skúturnar eru þó ekki allra, til að mynda fer það fyrir brjóstið á sumum hvar þeim er lagt.
Kona nokkur birti færslu á Facebook-hóp fyrir íbúa miðborgarinnar í dag þar sem hún kvartaði yfir því að hjólunum væri iðulega raðað upp fyrir framan Hallgrímskirkju, eitt helsta kennileiti borgarinnar.
„Zolo, Hopp og Reykjavíkurborg. Er bara í lagi að það séu alla daga langar raðir af hlaupahjólum beint fyrir utan Hallgrímskirkju?“ skrifar konan og bætir við:
„Viljiði vinsamlegast hætta að raða hjólunum fyrir framan kirkjuna og nota hlaupahjólastæðið sem er búið að útbúa sérstaklega (og stendur lang oftast autt) hinu megin við götuna? Þetta er svo hallærislegt. Þið eruð augljóslega að koma þeim fyrir svona sjálf, fólk er ekki skilja þau eftir svona eftir notkun.“
Þá biðlar hún til Reykjavíkurborgar og starfsfólks Hallgrímskirkju að skamma fyrirtækin fyrir þetta.
„Ég er almennt ekki að kvarta yfir þessum hjólum en þetta er fáránlegt. Hjólin ykkar eru ekki skraut fyrir framan eina þekktustu byggingu landsins,“ segir hún, en hrósar þó OSS Scooters & Tunglskin að koma sínum hjómum fyrir í sérstök stæði fyrir rafskútur.
Talsverð umræða hefur skapast við færslu konunnar.
„Mér finnst þetta miklu skárra en öll bílastæðin umhverfis kirkjuna. Það mætti breyta stæðunum í garð og leikvöll en skilja smá svæði eftir fyrir þessi hjól.“ skrifar einn netverji.
Annar segir: „Þarf ekki fólk bara að fara að athuga hvar það skilur þessi blessuðu rafhjól eftir þegar þau eru komin á áfangastað? Frekar pirrandi þegar þetta liggur eins og hráviði út um allar götur líka,“