Smíðakennarinn Gunnar Dan Wiium er gáttaður á klámvæðingunni í samfélaginu og veltir vöngum yfir henni í nýjum skoðanapistli á Vísi. Þar vísar hann til þess að hafa nýlega séð bíómyndina Pleasure í Bíó Paradís.
Myndin fjallar um 19 ára stelpu frá Svíþjóð sem flytur til Los Angeles til að gerast klámmyndaleikkona. Hlutirnir gerast hratt og fyrr en varir er hún komin á bólakaf í klámheima.
„Ég sat þarna saman með konunni minni og fann fyrir sorg satt að segja,“ skrifar Gunnar.
„Sorg yfir því hvar við erum, hvar við erum í kynhvöt, hvar við erum hvað varðar kynjabundið og kerfisbundið comercial ofbeldi og sorg yfir þessu framboði af týndum sálum sem fóðra síhungraða eftirspurn. Eftirspurn eftir „sviðsettri“ hópnauðgun, ríddu mömmu þinni, pabba þínum, ömmu þinni og dóttur. Hvað sem kynhvötin vill, efst til hægri, SEARCH WINDOW og þú ert með það.“
Hann segir að sér þyki þetta sorglegt sama hvað kynfræðingar segja og sama um hvort sé að ræða feminískt klám eða OnlyFans.
„Því í raun snýst þetta ekkert um sjálfsfróun heldur dópamínið sem ég næ að kreysta út með efninu, kreista út með þessari 19 ára sem er skítug hóra og alein heima,“ skrifar Gunnar.
Hvetur alla til að sannreyna hvort þeir séu haldnir klámfíkn
Hann hvetur lesendur sem haldnir eru ónotum yfir klámi til að sannreyna hvort þeir séu haldnir fíkn í klám. Hann hvetur þá til að gera smá tilraun.
„Komið aftur í kjarnan, komið tilbaka í sjálfsfróunina. Lokið augum og notist við ykkar eigin myndir, hugmyndir. Fyrir suma mun þetta taka tíma því ykkar eigin myndasmiðja hefur verið out of business í mörg ár, finnið þessa smiðju og opnið fyrir hana. Stundið mikla sjálfróun en stundið hana af sjálfbærni, það er áskorun því auðveldasta leiðin er að opna browserinn og leiðast þar inn í að vera mataður af rusli og þjáningu. Browserinn þar sem þið finnið 19 ára stelpur, stráka og eflaust yngri líka. Samviskan kallar á sjálfbærni og hefðbundin klámneysla eins og svo margir eru fastir í hefur skýr og greinilega áhrif á viðhorf okkar og samskipti hvort sem þau eru kynjabundin eða ekki.“