Koma Þórólfi til varnar: „Er þetta virkilega aðfinnsluvert?“

„Við megum ekki vera að draga þjóðir í ein­hverja dilka út af svona til­fellum,“ segir Guð­laug M. Jakobs­dóttir, for­seti stjórnar Alli­ance Française, í sam­tali við Morgun­blaðið í dag.

Þar gagn­rýnir Guð­laug um­mæli Þór­ólfs Guðna­sonar sótt­varna­læknis sem kallaði á­kveðið af­brigði kórónu­veirunnar, sem verið hefur á­berandi hér á landi að undan­förnu, „Frakka­veiruna“. Franskir ferða­menn, sem ekki fylgdu sótt­varna­til­mælum til hins ítrasta, greindust með veiruna í ágúst og virðist þessi sami stofn veirunnar nú hafa dreift sér víða.

Skemmst er að minnast þess þegar talað var um Wu­han-veiruna í upp­hafi far­aldursins en veiran var þá kennd við borgina sem hún greindist fyrst í. Þá hefur Donald Trump Banda­ríkja­for­seti í­trekað talað um Kína­veiruna og hefur hann hlotið gagn­rýni fyrir það. Ummælin sem Guðlaug vísar til féllu í kvöldfréttum Stöðvar 2 í fyrrakvöld. „Þessi Frakkaveira, sem við getum kannski kallað svo, er yfirgæfandi svolítið núna,“ sagði Þórólfur.

Guðlaug segir að um sé að ræða einstaklinga sem höguðu sér óábyrgt en það skipti engu máli hvaðan þeir koma.

At­hygli vekur að Stak­steina­höfundur Morgun­blaðsins í dag kemur Þór­ólfi til varnar.

„Hótel leyfa sér gjarnan að bjóða upp á enskan morgun­verð, jafn­vel hótel sem stað­sett eru utan Eng­lands og líka í þeim til­fellum þar sem hótelin taka með nafn­giftinni enga sér­staka af­stöðu til Eng­lands eða annarra hluta yfir­ráða­svæðis Elísa­betar drottningar. Fólk á það líka til að tala um franska kossa án þess að telja sig með því vera að lýsa sér­stakri af­stöðu til franskrar menningar eða hátt­semi enda al­mennt viður­kennt að ekki séu allir eins, hvorki innan landa­mæra Frakk­lands né annars staðar.“

Þá segir Stak­steina­höfundur að at­burðir, sumir nei­kvæðir, séu kenndir við ein­stök ríki og nefnir hann Tyrkja­ránið í því sam­hengi.

„Enn­fremur er þekkt að veirur og veikindi séu kennd við lönd eða land­svæði, svo sem spænska veikin, sem hafði lítið með Spán að gera, og MERS-kórónu­veiran, kennd við Mið-Austur­lönd. Nýju kórónu­veiruna finnst sumum þrátt fyrir þetta að megi ekki kenna við upp­runa­borgina, Wu­han, eða upp­runa­landið, Kína. Það er ný­stár­leg við­kvæmni. Nýjasta dæmið um þessa við­kvæmni er svo að fundið var að því að sótt­varna­læknir skyldi kenna af­brigði veirunnar, sem tveir franskir ferða­menn báru hingað til lands og dreifðu með ó­á­byrgum hætti, við Frakk­land. Er þetta virki­lega að­finnslu­vert?“