Ólafur Þ. Harðarson, prófessor í stjórnmálafræði við Háskóla Íslands, segir að það sé forvitnilegt að sjá Pírata og Framsóknarflokkinn vinna saman í nýjum meirihluta í borginni.
Nýr meirihluti var kynntur til leiks í gær og samanstendur hann af Framsóknarflokknum, Samfylkingu, Pírötum og Viðreisn. Dagur B. Eggertsson, oddviti Samfylkingar, og Einar Þorsteinsson, oddviti Framsóknarflokksins, munu skipta með sér borgarastjórastólnum á kjörtímabilinu.
Í samtali við Fréttablaðið í dag segir Ólafur:
„Það er mjög áhugavert við það að þessir flokkar séu að fara saman í meirihluta því það hefur virst spenna á milli þeirra í þinginu. Þannig ef samstarf þeirra í sveitarstjórnum gengur vel gæti það haft áhrif á andrúmsloftið í þinginu líka.“
Segir Ólafur að gangi samstarfið vel geti það vel breytt hinu pólitíska landslagi.
„Það gæti gert það. Ef skaplegt er á milli þeirra þá gæti það aukið líkurnar á að í landsstjórninni hugleiði fólk af alvöru þann möguleika að mynda fjögurra eða fimm flokka miðvinstri stjórn.“
Nánar í Fréttablaðinu í dag.