Edda Falak, fjármálafræðingur og hlaðvarpsþáttastjórnandi, hefur verið óþreytandi í baráttunni gegn kynferðisofbeldi hér á landi undanfarin misseri. Þetta baráttuþrek hefur gert það að verkum að hún er þyrnir í augum sumra eins og Edda lýst sjálf í færslu á Twitter-síðu sinni í gærkvöldi.
„Þekktur maður kemur að mér í Hagkaup og segir mér að hætta tjá mig og ásaka saklausa menn. Ég var bara barn þegar mér var haldið niðri og nauðgað af þekktum manni meðan hann sagði mér að slaka á - Ég er löngu hætt að láta einhverja kalla segja mér hvað ég á og má gera.“
Færsla Eddu vakti mikla athygli og þegar þetta er skrifað hafa rúmlega 1.100 manns sett „læk“ á hana.
TW. Þekktur maður kemur að mér í Hagkaup og segir mér að hætta tjá mig og ásaka saklausa menn. Ég var bara barn þegar mér var haldið niðri og nauðgað af þekktum manni meðan hann sagði mér að slaka á - Ég er löngu hætt að láta einhverja kalla segja mér hvað ég á og má gera
— Edda Falak (@eddafalak) November 2, 2021