Ugla Stefanía Jónsdóttir, formaður Trans Íslands, lenti í þeirri óskemmtilegu reynslu að vera rangkynjuð í heilbrigðiskerfinu í Bretlandi þar sem hán býr.
„Af einhverjum ástæðum, sem enginn getur útskýrt fyrir mér á tungumáli sem ég skil, hefur einhver óvart skráð kyn mitt rangt í sjúkraskrá,“ segir Ugla á Facebook. „Þetta er algjörlega óskiljanlegt þar sem ég breytti öllum mínum skráningum fyrir 11 árum og skráði mig í Bretlandi fyrir fimm árum.“
Þetta hefur leitt af sér óskemmtilega reynslu fyrir hán. „Þetta þýðir að heilbrigðisþjónustuveitandi minn kallar mig „Mr. Ugla“ því að kyngreining mín er skráð miðlægt og ekki hægt að breyta því á staðnum, það þarf að gera það miðlægt.“
Hán segir þetta mjög erfitt. „Aldrei í lífi mínu hélt ég að það væri svo erfitt að breyta einhverju svona einföldu,“ segir Ugla. „Kemur einhverjum á óvart að þetta land er í algjöru rugli?“
María Rún, sem hefur einnig búið lengi í Bretlandi, kannast við þetta: „Það er engin tilviljun að computer says no grínið fæddist í Englandi,“ segir hún.