Kolfinna, dóttir Jóns Baldvins: „Frá mínum bæjardyrum séð er svarið augljóst“

Kolfinna Baldvinsdóttir, dóttir Jóns Baldvins Hannibalssonar, lýsir yfir mikilli óánægju með þá staðreynd að faðir hennar hafi verið ákærður fyrir að hafa áreitt Carmen Jóhannsdóttur kynferðislega.

Dómur féll í málinu í Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun og fór það svo að Jón Baldvin var sýknaður. Hann var ákærður fyrir að hafa strokið Carmen utan klæða upp og niður eftir rassi. Sjálfur neitaði hann staðfastlega sök í málinu.

Kolfinna styður föður sinn af heilum hug og veltir því fyrir sér í færslu á Facebook hvers vegna faðir hennar var ákærður.

„Sýknaður, að að sjálfsögðu. Ákæruvaldið þarf að hugsa sinn gang. Það á ekki að draga mál inn í dómssal nema yfirgnæfandi líkur séu á sök (yfir 90%). Það lá fyrir frá upphafi að svo væri ekki. Saksóknari hefur eytt tíma okkar og peningum í vitleysu, sem hefði getað leitt til holskeflu af enn heimskulegri ákærum. Og þá er spurningin augljós: Hvers vegna dró saksóknari (Kolbrún Benediktsdóttir, Dröfn Kærnested) þetta fáránlega mál inn í dómssal? Hver var tilgangurinn? Frá mínum bæjardyrum séð er svarið augljóst.“