Kolbrún vill nýja sundlaug í Breiðholtið: „Ógerlegt að fara í sund milli 8-16“

Kolbrún Baldursdóttir, borgarfulltrúi Flokks fólksins, hefur lagt fram tillögu í skipulags- og samgönguráði um að byggð verði önnur sundlaug í Breiðholti.

Kolbrún vakti athygli á þessu í Facebook-hópi Breiðhyltinga þar sem hún hlaut góðar undirtektir. Hún lagði tillöguna fram þann 29. september síðastliðinn og leggur til að sundlaugin verði byggð nærri ÍR-svæðinu í Mjódd.

Kolbrún bendir á að nýtt hverfisskipulag fyrir öll hverfi Breiðholts hafi verið í umræðunni að undanförnu verið kynnt Breiðhyltingum.

„Í Breiðholti er ein sundlaug, Sundlaug Breiðholts. Í hverfinu öllu búa 22 – 24 þúsund manns. Það segir sig sjálft að ein sundlaug dugar varla til að annast þjónustu við hverfisbúa. Áætlað er að byggja mikið í Breiðholti næstu misserin sbr. nýtt hverfisskipulag. Um er að ræða allt að 2000 íbúðir þegar allt er tiltekið þar af nýjar íbúðir í Mjódd gætu orðið ca. 600 og aukaíbúðir í sérbýli mögulega ca. 500-700. Sjá má hvernig nýtingatölur í Sundlaug Breiðholts hafa hækkað jafnt og þétt frá 2009. World Class opnaði líkamsræktarstöð við hlið laugarinnar 2017 og fjölgað gestum laugarinnar þá umtalsvert. Árið 2009 var aðsókn 204.047 en árið 2019 432.219. Til samanburðar eru 3 sundlaugar í Hafnarfirði en þar búa ca. um 28 þúsund manns.“

Kolbrún bendir á að það séu ekki einungis Breiðhyltingar sem sækja í Breiðholtslaug. Íbúar í Norðlingaholti sæki þangað einnig enda Breiðholtslaug tiltölulega stutt frá Norðlingaholti.

„Nú er staðan þannig að erfitt ef ekki ógerlegt er að fara í sund milli 8-16. Vissulega er skólasund í forgangi en það er ekki ásættanlegt að almenningur eigi þess ekki kost að fara í sund nema á kvöldin til að synda. Breiðhyltingar eru jafnvel farnir að aka í önnur sveitarfélög til þess að fara í sund. Fulltrúi Flokks fólksins vill að skoðað verði fyrir alvöru að bæta við annarri sundlaug í Breiðholtinu. Þetta er góð líkamsrækt og gott fyrir heilsuna. Ekki hafa allir efni á líkamsræktarkorti.“