Kolbrún Baldursdóttir, borgarfulltrúi Flokks fólksins, mun í dag leggja fram tillögu í skipulags- og samgönguráði um breikkum Breiðholtsbrautar frá Jafnaseli að Rauðavatni.
Í tillögu sinni leggur hún til að skipulagsyfirvöld borgarinnar þrýsti á Vegagerðina og óski eftir viðræðum hið fyrsta um að breikka brautina.
„Þessi bútur brautarinnar er á annatímum löngu sprunginn, ekki síst síðla fimmtudags og föstudags þegar fólk streymir út úr bænum. Umferðarteppur eru af þeirri stærðargráðu að umferðarteppan nær niður alla Breiðholtsbrautina og situr fólk fast á brautinni í óratíma. Ástandið mun ekki batna þegar að Arnarnesvegurinn mun tengjast Breiðholtsbrautinni. Eðlilegt hefði verið að tvöföldun Breiðholtsbrautar væri gerð á undan tengingu við Arnarnesveg. Þetta ætti að vera algert forgangsmál,“ segir Kolbrún.
Hún deildi tillögu sinni í íbúahóp Breiðhyltinga á Facebook í morgun og eru margir á því að þetta sé löngu tímabært.
„Mikið hagsmunamál fyrir okkur í efri byggðum. Þessi stífla verður bara til þess að menn fara að aka Seljabrautina sem er töluvert hættulegri kostur,“ segir til dæmis einn íbúi í umræðum við færsluna.