Kol­brún vill að öll grunn­skóla­börn horfi á ís­lenska kvik­mynd frá 1950

Kol­brún Baldurs­dóttir, borgar­full­trúi Flokks fólksins, lagði fram at­hyglis­verða til­lögu á fundi borgar­stjórnar síðast­liðinn fimmtu­dag. Lagði hún til að kvik­myndin Síðasti bærinn í dalnum frá árinu 1950 yrði sýnd öllum grunn­skóla­börnum.

„Síðasti bærinn í dalnum er fyrsta leikna kvik­mynd Óskars Gísla­sonar. Hún var tekin upp á Tanna­stöðum í Ölfusi, í Kers­helli og í Kjósinni og var frum­sýnd árið 1950. Jórunn Viðar samdi tón­listina við myndina og var það fyrsta kvik­mynda­tón­list sem samin var á Ís­landi við mynd í fullri lengd,“ segir í til­lögu Kol­brúnar.

Hún bætti við að fyrir fáum árum hafi myndin verið endur­gerð með staf­rænum hætti og nú sé hún til þannig.

„Full­trúi Flokks fólksins leggur það til að myndin verði sýnd grunn­skóla­börnum sem menningar­inn­legg. Út­færslan og fram­kvæmd leggur full­trúi Flokks fólksins til að sé í höndum menningar- og ferða­mála­ráðs Reykja­víkur og Kvik­mynda­safnsins. Gera þarf sam­komu­lag við Kvik­mynda­safnið sem á sýninga­réttinn. Þetta er merki­leg mynd fyrir margar sakir og sögu­leg og á­stæða er að kynna leik­stjórann og höfund myndarinnar um leið og sýning myndarinnar yrði,“ segir í til­lögunni.

Afgreiðslu til­lögu Kol­brúnar var frestað en at­hyglis­vert verður að sjá hvort hún nái fram að ganga.