„Sóttvarnayfirvöld og stjórnmálamenn verða að gæta þess að tala ekki niður bólusetningar við Covid. Of oft hafa heyrst setningar eins og: „Við höfum orðið fyrir vonbrigðum með bólusetningarnar,“ og: „Bólusetningar hafa því miður ekki skilað því sem við bjuggumst við.“
Þannig hefst pistill Kolbrúnar Bergþórsdóttur í Fréttablaðinu í dag.
Hún segir þessi orð sem „hunang á vörum andstæðinga bólusetninga sem margsmjatta á þeim.“ Margir þeirra haldi því fram, án nokkurs rökstuðnings, að bóluefni valdi meiri skaða en Covid.
„Sú sem þetta skrifar heyrði á dögunum konu fullyrða staðfastlega að í bólusetningu í Laugardalshöllinni hefði þríeykinu og Kára Stefánssyni verið gefin lyfleysa. Kenningin er sú að Kári og þríeykið geri sér fulla grein fyrir því að bóluefnin séu stórhættuleg og því ekki látið sér detta í hug að láta sprauta sig með þeim og hætta eigin lífi. Ekki fylgdi þessari sömu sögu af hverju þessar þjóðhetjur væru svo miskunnarlausar að þær væru reiðubúnar að teyma þjóð sína nánast út í opinn dauðann.“