Kolbrún Baldursdóttir, borgarfulltrúi Flokks Fólksins, leiti meirihlutann í Reykjavík heyra það á borgarstjórnarfundi í dag þar ársreikningur borgarinnar var samþykktur.
„Þið eruð með allt niður um ykkur og fram undan eru lántökur og lántökur,“ sagði Kolbrún Baldursdóttir en mbl.is greinir frá.
Borgarfulltrúar meirihlutans töluðum um að rekstur meirihlutans væri betri en búast var við.
„Ekki vera að reyna að segja borgarbúum að borgarsjóður standi sterkur. Það er ekki satt. Auðvitað á borgin eignir en við erum ekki að fara að selja sundlaug upp í skuld,“ sagði Kolbrún sem var ekki sammála meirihlutanum í borginni um að borgarsjóður stæði vel og sagði að stjórnmálamenn þyrftu að vera heiðarlegir.
Hjálmar Sveinsson, borgarfulltrúi Samfylkingarinnar, sagði fjárhagslega stöðu borgarinnar sterka miðað við önnur sveitarfélög.
Í Reykjavík væru skuldir á hvern íbúa lægstar, af öllum sveitarfélögum á höfuðborgarsvæðinu.
„Mér finnst það ótrúlega lágkúrulegt hjá borgarfulltrúanum Kolbrúnu Baldursdóttur að halda því fram að við sem erum í meirihlutanum séum óheiðarleg,“ sagði Hjálmar.
Betri niðurstaða í borginni skýrist einkum af matsbreytingu fjárfestingaeigna hjá Félagsbústöðum um 19,4 ma.kr. umfram áætlun, áhrifum af gangvirðisbreytingum innbyggðra afleiða í raforkusölusamningum Orkuveitu Reykjavíkur sem námu 6,6 ma.kr. á árinu og auknum rekstrartekjum.
Vigdís Hauksdóttir, borgarfulltrúi Miðflokksins, og Eyþór Laxdal Arnalds, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins, gagnrýndu ársreikninginn og töluðu um óeðlilegar aðferðir.