Kol­brún segir á­standið ekki ganga til lengdar: „For­eldrar ungra barna hafi á­hyggjur“

Kol­brún Baldurs­dóttir, borgar­full­trúi Flokks fólksins, segir for­eldra í Reykja­vík vera að bugast, í grein á Vísi í gær.

„Í dag, 17. janúar, var um­ræða í borgar­stjórn að beiðni borgar­full­trúi Flokks fólksins um mann­eklu í leik­skólum. Mann­ekla í leik­skólum er lang­varandi vanda­mál í Reykja­vík sem meiri­hlutinn hefur ekki getað leyst,“ skrifar Kol­brún.

„Eins og vandinn blasir nú við er vissu­lega engin ein töfra­lausn. Mörg hundruð börn bíða eftir plássi. Meiri­hlutinn lofaði plássum í leik­skólum sem ekki höfðu verið byggðir eða full­kláraðir sem var á­fall fyrir for­eldra.

Ekki kann góðri lukku að stýra að lofa upp í ermina á sér og þurfa síðan svíkja lof­orðin. Það er ekki að­eins vanda­mál að það vanti pláss heldur berast títt fréttir af því að leik­skólar sendi börn heim viku­lega eða jafn­vel oft í viku vegna mann­eklu. Það gengur heldur ekki til lengdar að for­eldrar ungra barna hafi á­hyggjur og að starfs­fólk leik­skólanna sé að bugast vegna mikils á­lags í starfi,“ heldur Kol­brún á­fram.

Hún segir að hættan sé að það skapist svipað á­stand og er á bráða­mót­töku Land­spítalans en þar hefur margt starfs­fólk sagt upp vegna mikils á­lags og slæmrar vinnu­að­stöðu.

„Borgin, sem er í hröðum vexti, stefnir á fjölgun leik­skóla­plássa um allt að 500 á næsta ári. Margir leik­skóla­kennarar hafa flutt sig yfir til grunn­skólanna þar sem þeim kann að finnast störfin þar meira að­laðandi.

Í Reykja­vík þarf að laða fólk til starfa í leik­skólum meðal annars með bættum kjörum og starfs­að­stæðum. Það kann að vera erfitt þar sem fjár­hagur borgarinnar er á heljar­þröm.“

„Flokkur fólksins hefur lagt fram nokkrar til­lögur til úr­bóta. Til að vinna okkur út úr stöðunni þarf hlað­borð lausna. Flokkur fólksins lagði fram til­lögu um heima­greiðslur til for­eldra meðan þeir bíða eftir leik­skóla­plássi fyrir börn sín. Sú lausn er ó­dýrari fyrir sveitar­fé­lagið en dýrt leik­skóla­pláss ef miðað er við yngstu börnin.

Flokkur fólksins hefur einnig í­trekað lagt til að bjóða fólki upp á sveigjan­leg starfs­lok. Í hópi eldri borgara er dýr­mætur mann­auður, mann­auður sem við viljum njóta sem lengst,“ skrifar Kol­brún að lokum.