Kol­brún reiddist: „Greini­lega eld­fimt og ofur­við­kvæmt“

Kol­brún Baldurs­dóttir, borgar­full­trúi Flokks fólksins, viður­kennir að hún hafi reiðst á fundi borgar­ráðs í gær. Til­lögu hennar um að borgin kynnti sér betur starfs­hætti annarra þjóða í að­gerðum er varða raka­skemmdir var vísað frá á fundi ráðsins.

„Málið var greini­lega eitt­hvað eld­fimt því ekki fengust neinar skýringar á frá­vísuninni,“ segir Kol­brún í pistli á heima­síðu sinni.

„Til­lagan var ein­föld og mild í sjálfu sér og sneri að því að hvetja um­hverfis­ráð/svið að kynna sér starfs­hætti frá fleiri þjóðum svo sem Þjóð­verjum eða Dönum en þessar þjóðir hafa náð góðum árangri í að­gerðum sem varða myglu- og raka­skemmdir í opin­berum byggingum,“ segir Kol­brún sem kveðst hafa verið svekkt með frá­vísunina.

„Ég reiddist því ég hafði lagt vinnu í þessa til­lögu og rætt við marga. Stað­gengill formanns borgar­ráðs sem stýrði fundi fleygði þessari til­lögu út eins og ó­hreinni tusku án skýringa nema bara af því að hún hafði valdið. Hvað á maður að halda þegar svona brútal vinnu­brögð eru við­höfð? Af hverju mátti þessi til­laga ekki fara í skoðun?“

Í til­lögu Flokks fólksins sagði Kol­brún að loft­gæða­mál vegna raka­skemmda og annarra á­stæðna væri stórt vanda­mál í sumum skólum og vinnu­stöðum Reykja­víkur­borgar.

„Af­leiðingar hafa verið skelfi­legar fyrir marga. Víða í þeim löndum sem náð hafa hvað mestum árangri í að­gerðum sem varða raka­skemmdir t.d. í Þýska­landi eru notuð sér­hæfð loftefna­hreinsi­tæki til að bæta loft­gæði tíma­bundið í skóla­stofum og öðrum rýmum sem eru loft­menguð og þegar verið er að vinna í menguðum rýmum við hlið rýma sem eru í notkun, til þess að bæta líðan nem­enda og starfs­fólks og gefa sér­fræðingum meira svig­rúm til að meta skemmdir og grípa til að­gerða.“

Kol­brún sagði í til­lögunni að menguðu rýmin væru inn­sigluð og að­skilin frá öðrum rýmum og loftefna­hreinsi­tækin notuð til að­stoðar. Lagði Kol­brún þa til að borgin myndi skoða þessar að­ferðir með opnum hug.

Eftir að til­lögunni var hafnað lagði Kol­brún fram bókun þar sem hún sagði: „Af ein­hverjum á­stæðum virðist málið ofur­við­kvæmt og eld­fimt, svo eld­fimt að ekki er einu sinni hægt að senda til­löguna til frekari skoðunar eða um­sagnar hjá um­hverfis­sviði? Full­trúi Flokks fólksins á því ekki annara kosta völ en að leggja til­löguna fyrir borgar­stjórn.“