Kolbrún Baldursdóttir, oddviti Flokks fólksins í borgarstjórn Reykjavíkur, segir að hópur fólks sem býr nálægt næturklúbbum miðborgarinnar hafi haft samband við hana og lýst ömurlegri tilveru um nætur þegar stemning gesta næturklúbba er í hámarki.
Kolbrún segir frá þessu í aðsendri grein í Morgunblaðinu í dag. Þá skrifar hún um sama mál í Fréttablaðinu í dag.
Í grein sinni í Morgunblaðinu bendir hún á að reglugerð um hávaðamengun í borginni sé í gildi og hún sé ágæt til síns brúks. Eina vandamálið sé að henni er einfaldlega ekki framfylgt.
„Auk þess stangast leyfi fyrir afgreiðslutíma skemmtistaða á við þau lög að íbúar eigi rétt á svefnfriði frá klukkan 23 til sjö að morgni, óháð búsetu, samkvæmt 4. grein lögreglusamþykktar. Einnig er sláandi að hávaðamörkum er ekki framfylgt með nokkrum viðunandi hætti en þau mega ekki fara yfir 50 desíbel úti á götum (Evrópusambandið miðar við 40 desíbel). Ítrekað hefur verið hringt í lögreglu, sem íbúar segja að hafi engu skilað.“
Hún segir að hjá mörgum þessara íbúa sé mælirinn löngu orðinn fullur. Í nærumhverfi þessara næturklúbba sé blönduð byggð þar sem margar barnafjölskyldur eiga heima, öryrkjar og eldra fólk.
„Þegar íbúarnir hafa kvartað við yfirvöld hefur mætt þeim tómlæti. Þeir eru jafnvel spurðir hvers vegna „þeir flytji ekki bara eitthvað annað?“ Hér er verið að tala um næturklúbba sem eru opnir til klukkan 4.30 með tilheyrandi hávaða, götupartíum, skrílslátum, sóðaskap og ofbeldi. Að leyfa diskótek í gömlum, fullkomlega óhljóðeinangruðum timburhúsum verður að teljast harla undarlegt.“
Hún segir að margir íbúar, konur sérstaklega, veigri sér við að vera úti eftir miðnætti um helgar af ótta við að verða fyrir aðkasti og áreitni.
„Þessir næturklúbbar selja áfengi fram á lokamínútu. Frést hefur af fólki sem vill halda áfram að djamma ganga út með birgðir af áfengi þegar skellt er í lás. Ekki er óalgengt að íbúar finni fólk í görðum sínum, eða á útidyratröppunum, sem lagst hefur þar til svefns eða dáið drykkjudauða. Ferðamenn líða einnig fyrir næturdjammið í miðbænum. Eigendur hótela og gistihúsa fá stöðugar kvartanir frá hótelgestum um að þeir geti ekki sofið fyrir hávaða. Sú sjón sem blasir við ferðamönnum þegar þeir fara í skoðunarferðir snemma morguns eða út á flugvöll er heldur ófögur og ekki borginni til sóma. Það er engu líkara en að borgaryfirvöld séu algerlega meðvitundarlaus um þennan ófögnuð.“
Kolbrún bendir á að þegar fólk hefur drukkið ótæpilega leiði það meðal annars til þess að dómgreind og skynsemi víkur.
„Ofurölvun getur aukið líkur á ólöglegu atferli, áreitni og ofbeldi. Ölvaðir gestir næturklúbba kasta stundum af sér vatni þar sem þeir standa og ganga örna sinna á hinum ólíklegustu stöðum, t.d. á tröppum fólks, í görðum eða geymslum þeirra. Sprautunálum, bjórdósum, glösum, smokkum, sígrettustubbum og matarleifum er hent hvar sem er og endar það oftar en ekki á tröppum íbúanna eða í görðum þeirra. Dauðir hlutir njóta heldur engra griða. Veggjakrot og eignaspjöll fá að þrífast án nokkurrar refsingar. Bílar íbúanna hafa sömuleiðis verið skemmdir, inn í þá brotist eða skorið á dekkin. Þeir sem hafa leitað til lögreglu eða tryggingafélaga með þessi mál hafa ekki haft erindi sem erfiði,“ segir Kolbrún sem bætir við að ef kostnaður af skemmdarverkum á eigum fólks í miðborginni sem tengist næturklúbbum yrði tekinn saman myndi hann ábyggilega hlaupa á hundruðum milljóna króna.
Kolbrún segir að þetta ófremdarástand megi strax bæta en enginn sé að tala um að banna næturklúbba. Fyrsta skrefið væri að virða gildandi reglugerðir, skala niður hávaðann og skoða hvort ekki sé hægt að finna hentugri staðsetningu fyrir næturklúbba af þessari tegund.