Kolbrún hvöss: „Með höftum er verið að tala niður árangur bólusetninga“

Kolbrún Bergþórsdóttir, menningarritstjóri Fréttablaðsins, er hvöss í leiðara blaðsins í dag og kallar eftir því frelsi sem fólki hafi verið lofað ef það færi í bólusetningu gegn Covid-19.

„Lítið bólar hins vegar á frelsinu sem fólki var lofað, léti það sprauta sig. Enn eru ströng höft við lýði og lítið vit virðist í þeim flestum. Endalaust er verið að telja fólki trú um að hættur leynist svo að segja alls staðar. Ótrúlega margir gleypa við þeim áróðri,“ segir Kolbrún.

„Rétt er að víkja að menningunni – en ekki hafa borist fréttir af því að fólk sé að smitast í einhverjum mæli á menningarviðburðum. Samt er það svo að það kostar mikla fyrirhöfn að komast á slíka viðburði. Þar eru fjöldatakmarkanir og grímuskylda, hraðprófs er krafist og fólk má ekki blanda geði.“

Hún segir ekki i nema von að margir forðist að leggja það á sig og kjósi að sitja heima.

„Menningarviðburðir eiga að vera vítamínsprauta fyrir sálarlífið, ekki vera íþyngjandi. Á hverjum degi er menningarviðburðum frestað eða hætt við þá vegna ýmiss konar takmarkana. Menningarlíf á Íslandi er að verða fyrir miklu höggi vegna hafta. Eigum við virkilega að taka því með brosi á vör?,“ spyr hún.

„Með höftum er verið að tala niður árangur bólusetninga. Á sama tíma er farið í bólusetningarátak. Það er ekki einkennilegt að einhverjir skuli spyrja: Til hvers að fara í bólusetningu ef það skilar mér engu? Aðrir heimta svo að óbólusettir verði gerðir að annars flokks borgurum því bólusettum stafi hætta af þeim.“