Menningarblaðamaðurinn Kolbrún Bergþórsdóttir er ekki ánægð með frambjóðendur í Reykajvík fyrir komandi kosningar ef marka má leiðara hennar í Fréttablaðinu í dag.
„Ekki verður þess vart að einungis nokkrar vikur séu til borgarstjórnarkosninga. Eftirvænting meðal borgarbúa er lítil sem engin, jafnvel þeir þrætugjörnustu meðal þeirra nenna ekki að rífast um borgarmál. Þeim virðist standa á sama um úrslitin. Fari fram sem horfir má búast við að fjöldi kjósenda sitji heima eða komi sér í frí til útlanda án þess að kjósa,“ skrifar Kolbrún.
„Tíðindaleysið í kosningabaráttunni er æpandi og lítið ber á frambjóðendum. Sú sem þetta skrifar telur sig reyndar hafa séð andlit Hildar Björnsdóttur á auglýsingaspjaldi á strætisvagni, en kannski var það missýning.“
„Sú litla kosningabarátta sem er farin í gang byggist helst á skítkasti. Þannig má lesa í skoðanadálkum vinstrimanna sömu fullyrðingu og borgarstjórinn okkar ágæti hélt fram á dögunum, sem sagt þá að Sjálfstæðisflokkurinn í borginni sé sundurtættur af innbyrðis átökum og alls ófær um að taka við völdum í borginni. Þetta er vitaskuld hræðsluáróður. Sjálfstæðisflokknum er vel treystandi fyrir borgarstjórastólnum og hann er ágætlega fær um að vinna borgarbúum gagn,“ skrifar Kolbrún.
„Úr svipuðum ranni má heyra að Framsóknarflokkurinn eigi ekki erindi í borgarstjórn. Þetta er vitaskuld einnig fjarstæða. Frambjóðandinn í efsta sæti listans í borginni er geðugur einstaklingur sem sjálfsagt er að veita brautargengi, enda er honum trúandi til góðra verka.“
Hún segir að það sé einfaldlega þannig að gott fólk er í flestum flokkum sem er treystandi að fara með völd.
„Svo væri vitanlega gaman að fá konu sem borgarstjóra. Það sem skekkir þá mynd er að núverandi borgarstjóri er eins og fæddur í embættið og hefur auk þess yfir sér einhvers konar siguráru. Það er engin sérstök ástæða til að hafna honum, þótt hann hafi reyndar setið ansi lengi. Hugsanlega mun stór hluti þeirra kjósenda sem nenna að mæta á kjörstað hugsa einmitt á þennan hátt. Það má þó líka hugsa sér að áhugaleysi á kosningunum muni bitna á fylgi meirihlutans. Sjálfstæðismenn hafa alltaf kunnað að smala sínu fólki á kjörstað, og einmitt sú hæfni kann að vinna vel með þeim í þessum kosningum.“
„Hrokafullt viðmót kann einnig að vinna gegn meirihlutanum, þar er fólk, þó ekki borgarstjórinn, farið að láta eins og það eigi rétt á völdum. Slíkt virkar fráhrindandi. Meirihlutinn ætti að koma sér upp bljúgara viðmóti, allavega svona rétt á meðan hann er í kosningabaráttu. En umfram allt er kominn tími til að hefja yfirvegaða kosningabaráttu,“ skrifr Kolbrún að lokum.