„Það er ekki réttlætanlegt að halda svo rígfast í íþyngjandi aðgerðir,“ segir Kolbrún Bergþórsdóttir í leiðara Fréttablaðsins í dag.
Þar fjallar hún um þær takmarkanir sem eru í gildi vegna COVID-19 hér á landi og þykir henni augljóslega nóg um.
„Ekki er eðlilegt að boð komi að ofan um það hversu margir einstaklingar megi koma saman við ákveðnar athafnir og hversu margir megi vera í búðum og á veitingastöðum. Þetta eru dæmi um þau höft og bönn sem einstaklingar hafa búið við á Covid-tímum og ætlast er til að þeir taki hátíðlega án þess að spyrja krefjandi spurninga,“ segir Kolbrún sem bætir við að COVID-tíminn hafi sýnt okkur fram á margt, meðal annars það hversu auðvelt er að hræða fólk og gera það svo auðsveipt að fer jafnvel að líta á óeðlilegt ástand sem venjulegt.
„Höft og bönn eru ekki við lýði í sama mæli og áður en fyrirfinnast þó enn, jafnvel þótt þjóðin komist nálægt því að eiga heimsmet í bólusetningum. Er til dæmis sjálfsagt að loka móður og níu ára dóttur hennar inni í litlu herbergi, svalalausu, á sóttvarnahóteli í tíu daga,“ segir Kolbrún og nefnir raunverulegt dæmi.
„Stúlkan er með Covid en móðirin ekki og smitast ekki af dóttur sinni. Dóttirin er með afar góða skapgerð og tryllist ekki við innilokunina heldur reynir að sætta sig við frelsissviptingu, þótt hún bresti vitanlega í grát í fangi móður sinnar. Þetta er stúlka sem hefur unun af íþróttum og nýtur þess að hreyfa sig. Hún skal læst inni dögum saman,“ segir Kolbrún.
Hún segir að það hljóti að vera rétt að spyrja hvort svona grimmileg aðgerð sé virkilega nauðsynleg.
„Nei, er svarið. Hversu oft hefur ekki verið margtuggið ofan í okkur að við þurfum að lifa með Covid? Samt er eins og aðgerðir miðist að því að uppræta veiruna með hörðum aðgerðum sem nær ómögulegt er að réttlæta. Alvarleg veikindi eru ekki grasserandi í landinu vegna Covid og fólk er ekki að deyja úr sjúkdómnum. Það er ekki réttlætanlegt að halda svo rígfast í íþyngjandi aðgerðir.“