Fjölmiðlakonan Kolbrún Bergþórsdóttir er ekki þekkt fyrir að liggja á skoðunum sínum. Kolbrún skrifar leiðara Fréttablaðsins í dag þar sem hún gerir komandi jólahátíð að umtalsefni. Jólin í ár verða með töluvert breyttu sniði en við eigum að venjast.
„Alls kyns ráðleggingum er beint til fólks, eins og að umgangast ekki of marga og sækja ekki í fjölmenn boð. Fólk á sem sagt ekki að vera of mikið á ferðinni um jólin. Langbest er talið að það haldi sig heima í rólegheitum, þannig þjónar það samfélaginu og náunganum best,“ segir hún.
Þetta ástand hefur sína kosti og galla en Kolbrún kýs að líta á björtu hliðarnar í leiðara sínum.
„Sumar breytingar á daglegu lífi eru þó jafnvel gleðilegar eins og til dæmis það að losna við hinn hvimleiða leynivinaleik, sem tíðkaður hefur verið á vinnustöðum um jól, mörgum starfsmönnum til töluverðs ama. Nú eru vinnustaðir svo fámennir og rólegir að þessi hefð er blessunarlega sett í salt, eins og ýmislegt annað. Þarna er lítið dæmi, bara örlítið, um það að alltaf má koma auga á eitthvað jákvætt á tímum þar sem höft og bönn eru við lýði,“ segir hún.