„Það er miður að borgaryfirvöld sjái ekki nauðsyn þess að fullklára kirkjugarð þar sem Reykvíkingar sem óska þess að vera jarðaðir í kistu fái að hvíla,“ segir Kolbrún Baldursdóttir, borgarfulltrúi Flokks fólksins, í tillögu sem hún lagði fram á fundi skipulags- og samgönguráðs Reykjavíkurborgar í gær.
Kolbrún segir á Facebook-síðu sinni að hún hafi lagt tillöguna fram eftir að hafa hlustað á viðtal við Þórstein Ragnarsson, forstjóra Kirkjugarða Reykjavíkurprófastdæma, í þættinum Morgunvaktinni í vikunni.
Í tillögu sinni sagði hún að borgar- og skipulagsyfirvöld í Reykjavík hafi sýnt getuleysi þegar kemur að þessum málaflokki.
„Það líður að því að plássin fyrir kistur í Gufuneskirkjugarði klárist en reiknað er með plássi fyrir kistur í mesta lagi 3-4 ár í viðbót og þá þarf að fara að jarða Reykvíkinga í kirkjugarðinum í Kópavogi,“ segir hún.
Þá bendir hún á að kirkjugarðurinn við Úlfarsfell hafi lengi verið í undirbúningi, en skipulagsyfirvöld dregið það árum saman að hefja framkvæmdir.
„Ítrekað hefur skipulagsyfirvöldum verið gert ljóst að brýn þörf er á nýjum grafarsvæðum og að hraða þurfi framkvæmdum á kirkjugarðinum við Úlfarsfell en skipulagsyfirvöld hafa látið málið sem vind og eyru og þjóta.“
Kolbrún lagði það auk þess til að gert verði átak í Hólavallagarði. Halda þurfi honum betur við en gert hefur verið.
„Aðeins hluti garðsins hefur verið tekinn í gegn en annar hluti hans er að grotna niður. Skipulagsyfirvöld borgarinnar hafa til margra ára ekki sýnt Hólavallagarði nægjanlega virðingu og ekki úthlutað til hans nauðsynlegum fjármunum til að halda honum við.“