Kolbeinn Tumi Daðason, fréttastjóri Stöðvar 2, Vísis og Bylgjunnar, sá ástæðu til að stíga fram í gærkvöldi og tilkynna vinum og vandamönnum að hann hefði ekki unnið rúman milljarð í Víkingalottóinu í sumar.
Þrálátur orðrómur þess efnis hefur gengið milli manna undanfarnar vikur en Kolbeinn Tumi þvertekur fyrir að vera hinn stálheppni milljarðamæringur.
„Brandari, sem mér þótti frekar augljós í sumar, hefur leitt til þess að fyrirspurnum fer sífjölgandi og við Selma eða vinir mínir fáum spurninguna: Vann Tumi milljarð í lottóinu?
Þetta hefur leitt til margra hlátraskalla þegar ég deili þessum fyrirspurnum með vinnufélögum og vinum, en nú er þetta eiginlega komið gott,“ segir hann.
Kolbeinn Tumi brá á leik í sumar og skrifaði tvær færslur á Facebook um lottóvinningshafann heppna. Í þeirri fyrri, þann 10. júní, deildi hann frétt um sigurvegarann og sagði: „Þetta var óvænt en skemmtilegt í gær. Öllum boðið í partý!“
Í þeirri seinni, þann 6. ágúst, sagðist hann ekki ætla að tjá sig um það hvort hann væri fjölskyldufaðirinn á fertugsaldri sem hefði unnið rúman milljarð í lottóinu. „Nýja einbýlishúsið á Arnarnesinu, Teslurnar tvær og nýtilkominn vinskapur við Bill Gates er mitt einkamál.“
Eitthvað virðast hlutirnir hafa undið upp á sig og undanfarnar vikur hefur verið skrifað og skrafað milli manna að Kolbeinn Tumi í raun unnið þann stóra. En til að taka af öll tvímæli er Kolbeinn enginn milljarðamæringur – og vildi ekki einu sinni vera það.
„Í þessum samræðum hef ég nefnilega deilt því með fólki, eins fáránlega og það hljómar kannski í eyrum einhverra, að ég myndi ekki vilja vinna milljarð. Ég hef aldrei spilað í lottóinu og tölfræðin segir okkur að það fer illa fyrir þeim sem vinna risastóran vinning. Og núna er ég örlítið farinn að finna fyrir neikvæðum áhrifum þess (ekkert alvarlegt samt), að eiga að hafa unnið milljarð, svo ég kannski svara þessu í eitt skipti fyrir öll, segir Kolbeinn Tumi og heldur áfram:
„Nei, ég vann ekki milljarð í lottóinu. Ég hef líklega ekki unnið neinn vinning síðan ég var unglingur og nældi mér í einstaka þúsund kall á Lengjunni. Kom þó vafalítið út í smá mínus á því tipptímabili. Ég nýt þess þó að hafa unnið í lífslottóinu að mörgu leyti og er afar þakklátur fyrir það.“