Kolbeinn Tumi Daðason, fréttastjóri Stöðvar 2, Vísis og Bylgjunnar, benti á býsna áhugaverða staðreynd á Twitter-síðu sinni í dag.
Þar gerir hann einfaldan samanburð á verði á almenningssamgöngum, annars vegar hér á landi og hins vegar í Brussel í Belgíu.
„Miði í rútu frá BSÍ til Keflavíkur 4999 krónur. Strætó frá flugvellinum í Brüssel niður í miðbæ, 7 evrur,“ segir Kolbeinn Tumi í færslu sinni en 7 evrur eru nánast sléttar þúsund krónur íslenskar.
Gísli Marteinn Baldursson, sjónvarpsmaður og fyrrverandi borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins, deilir færslu Tuma og tekur undir með honum.
„Ríkið á og rekur flugvöllinn. Ríkisstjórnin hefur það algjörlega í hendi sér hvernig almenningssamgöngur og bílastæðamál eru útfærð. Og þau kjósa að útfæra þetta á svo ömurlegan hátt að við skömmumst okkar. Algjört metnaðarleysi og molbúaháttur.“
Kolbeini Tuma er bent á að miðinn í rútuna kosti 3.899 krónur samkvæmt heimasíðunni en þrátt fyrir það hafi hann borgað 4.999 krónur í sjálfsalanum á BSÍ. Er honum bent á að hann hafi líklega borgað fyrir að láta sækja sig á hótel á höfuðborgarsvæðinu. Það breyti því þó ekki að verðið sé hátt og benda fleiri á verðið fyrir samgöngur af þessu tagi í öðrum löndum.
Einn bendir á að flugrútan frá Arlanda-flugvelli inn í Stokkhólm kosti 129 sænskar krónur og þar í landi sé verðbólgan svipuð og á Íslandi. 129 sænskar krónur jafngilda 1.700 íslenskum krónum. Annar bendir á að það kosti 1.300 krónur íslenskar að koma sér frá Gardermoen inn í miðborg Oslóar í Noregi. Vegalengdin þaðan sé svipuð og frá Keflavíkurflugvelli til Reykjavíkur.
Miði í rútu frá BSÍ til Keflavíkur 4999 krónur. Strætó frá flugvellinum í Brüssel niður í miðbæ, 7 evrur….
— Kolbeinn Tumi (@kolbeinntumi) March 9, 2023
Ríkið á og rekur flugvöllinn. Ríkisstjórnin hefur það algjörlega í hendi sér hvernig almenningssamgöngur og bílastæðamál eru útfærð. Og þau kjósa að útfæra þetta á svo ömurlegan hátt að við skömmumst okkar. Algjört metnaðarleysi og molbúaháttur. https://t.co/OUe3QazWva
— Gísli Marteinn (@gislimarteinn) March 9, 2023