Framkvæmdastjórinn Kolbeinn Marteinsson fjallar um hlutabréfaviðskipti í pistli sínum í Fréttablaðinu í dag. Þar fjallar hann um þrjár mismundandi erkitýpur fjárfesta, sem hann fær frá einum farsælasta fjárfesti heims Warren Buffet.
„Undanfarin misseri höfum við séð góða ávöxtun hlutabréfa og mikinn vöxt meðal almennings í fjárfestingum. Það er fagnaðarefni enda ættu fjárfestingar að vera hluti af fjármálum okkar allra. Einn farsælasti fjárfestir síðari tíma, Warren Buffet, og einn ríkasti maður í heimi, er reglulega spurður út í fjárfestingar og hvað beri að varast í þeim efnum.
Buffet hefur sagt að gott sé að vera meðvitaður um ákveðið ferli þegar kemur að fjárfestingum. Ferli sem skýrir hvernig góðar hugmyndir um fjárfestingar verða slæmar. Sjálfur hefur Buffet lýst þessu á ensku sem hinum þremur I-um (the Three I‘s) og vísar í þrjú hugtök sem öll byrja á I. Innovator, Immitador og Idiot sem heimfært á íslensku gæti verið, frumkvöðull, hermikráka og bjáni.“
Kolbeinn útskýrir síðan þessar týpur betur, og segir frá því hverjar þeirra græða mest og hverjir tapa. Hann segir að frumkvöðlarnir séu í bestu stöðunni og takist manni að fjárfesta eins og þeir og endurtaka leikinn geti maður á endanum dáið ríkur.
„Þannig eru frumkvöðlarnir fyrstir til að fjárfesta, sjá tækifærin sem aðrir sjá ekki og efnast oft vel. Á eftir þeim koma hermikrákurnar sem gera það sama og frumkvöðlarnir og efnast einnig. Síðastir koma svo bjánarnir sem eru reknir áfram af græðgi og von um að þeir muni græða rétt eins og þeir sem á undan komu, sannfærðir um að veislan endi aldrei.
Áskorunin sem við stöndum því frammi fyrir þegar við erum að fjárfesta er að reyna að sjá hvar í ferlinu við erum stödd. Ein þumalputtaregla er að þegar frændi þinn sem aldrei hefur fjárfest á ævinni fer að segja þér frá ofsagróða hlutabréfaviðskipta í fermingarveislu, þá er næsta víst að það er orðinn góður tími til að selja hlutabréfin þín. Þú getur svo keypt hlutabréfin aftur þegar verðið hefur hrunið og um leið ertu orðinn frumkvöðull í fjárfestingum. Svona getur þú endurtekið leikinn og á endanum dáið sem rík manneskja.“
Hægt er að lesa pistil Kolbeins hér