„Konan af þakkaði kærlega gott boð og í bílnum komast hjónin að því að hugulsemi í garð ókunnugra endist miklu lengur en rjómabolla í maga,“ segir Kolbeinn Marteinsson í bakþönkum Fréttablaðsins í dag.
Þar segir hann á býsna skemmtilegan hátt frá bíltúr hans og eiginkonu hans síðastliðinn sunnudag, en ferðinni var heitið vestur á Mýrar.
„Þegar þau eru rétt komin í Kollafjörð brýst sólin fram. Ferðin er tíðindalítil utan þess að þau eru ekki sammála um á hvaða hlaðvarp eigi að hlusta. Niðurstaðan verður Rás 1 í útvarpinu. Þegar þau nálgast Borgarnes lækkar maðurinn skyndilega í útvarpinu og segir: ,,Heyrðu, mikið langar mig í bollu, eigum við ekki að fá okkur rjómabollu í bakaríinu við brúna?“
Það er skemmst frá því að segja að konan hans tók vel í þetta og bætir Kolbeinn við að hún hafi, af eðlislægri hagsýni, bætt við að upplagt væri að kaupa um leið bollu fyrir soninn til að taka með í skólann næsta dag, bolludag.
„Þau leggja bílnum fyrir utan bakaríið og konan hleypur inn, en kemur strax til baka vonsvikin því það er nýbúið að loka bakaríinu. Áfram er ekið inn í Borgarnes og stansað í hjarta bæjarins. Konan hleypur út til að athuga hvort ekki fáist rjómabollur í stórmarkaðinum. Maðurinn bíður í bílnum en sér konu sína koma út bollulausa og benda í átt að þjónustumiðstöð N1. Greinilegt er að þar á að gera lokatilraun.“
Kolbeinn segir að eftir skamma stund hafi konan komið til baka bollulaus en þó skælbrosandi.
„Eiginmaðurinn er forviða. Hún upplýsir að þegar starfsmaður N1 heyrði af vandræðum hjónanna hafi hann brugðist við á óvæntan hátt og sagt: ,,Ég keypti sko fjórar rjóma - bollur áður en ég fór í vinnuna en borðaði bara tvær. Þú mátt alveg fá þær, ég er búinn að borða nóg.“
Kolbeinn segir að konan hafi afþakkað kærlega gott boð en í bílnum hafi þau komist að því að hugulsemi í garð ókunnugra endist miklu lengur en rjómabolla í maga. „Sólin skín,“ segir hann að lokum.