Kol­beinn: Hættum að for­dæma eitur­lyfja­sjúk­linga á sama tíma og við hömpum drykkju­rútum

„Við eigum að hætta að greina vímu­efni í á­fengi og eitur­lyf, í góð vímu­efni eða slæm,“ segir Kol­beinn Marteins­son pistla­höfundur í bak­þönkum sínum í Frétta­blaðinu í dag. Þar skrifar Kol­beinn um mál nr. 714 sem liggur fyrir á Al­þingi í dag. Í saman­tekt á vef Al­þingis segir „Lagt er til að varsla á­vana- og fíkni­efna sem teljast til eigin nota verði heimiluð. Þá er lagt til að ráð­herra skuli í reglu­gerð kveða á um hvaða magn á­vana- og fíkni­efna getur talist til eigin nota.“

Kol­beinn hefur áður fjallað um mikil­vægi þess að sam­fé­lagið nálgist vímu­efna­vandann sem heil­brigðis­vanda­mál en ekki sem glæp. Hann bendir á að fjöl­margar rann­sóknir sýni að börn sem verði fyrir al­var­legum á­föllum í æsku séu miklu lík­legri til að á­netjast vímu­efnum. „Fangelsi landsins eru full af fólki með vímu­efna­vanda sem sam­fé­lagið brást í barn­æsku með af­skipta­leysi eða van­rækslu og for­dæmir síðan,“ segir Kol­beinn.

Þá segir Kol­beinn á­kveðinn tví­skinnungur ein­kenni um­ræðuna um vímu­efni hér á landi og að við eigum að hætta að tala um fyrir­litningu um eitur­lyfja­sjúk­linga en á sama tíma hampa drykkju­rútum og á­fengis­neyslu. „Það var fram­fara­skref þegar alkó­hól­ismi var fyrir ekki svo löngu viður­kenndur sem sjúk­dómur og hætt var að líta á alkó­hól­ista sem veik­geðja aumingja sem þyrftu að gyrða sig í brók og hætta að drekka,“ segir Kol­beinn. „Við eigum að gera það sama við ein­stak­linga sem haldnir eru fíkn í ó­lög­leg vímu­efni. Þess vegna á Al­þingi að sam­þykkja mál nr. 714.“