„Þetta var fyrir tveimur árum og er þetta ein besta ákvörðun og framkvæmd sem ráðist hefur verið í á mínu heimili.“
Þetta segir Kolbeinn Marteinsson pistlahöfundur í bakþönkum Fréttablaðsins í dag.
Þar skrifar Kolbeinn um dásemdir sánabaða sem hann kveðst hafa uppgötvað fyrir nokkrum árum. Segir Kolbeinn að eftir reglulegar heimsóknir í sundlaugina hafi verið ákveðið að fórna einni geymslunni heima fyrir sánu. Fullyrðir Kolbeinn að þetta sé ein besta ákvörðun sem hann hefur tekið á sínu heimili.
Kolbeinn nefnir Finnland í þessu samhengi og bendir á að 3,3 milljónir sánaklefa séu í landinu sem telur 5,3 milljónir íbúa.
„Sánan er órjúfanlegur hluti af menningu og sjálfsmynd þessarar þjóðar sem jafnframt mælist sú hamingjusamasta í heimi. Samhliða þessari miklu notkun á sánaböðum hafa jákvæð áhrif sánabaða á heilsu fólks í Finnlandi verið rannsakaðar.“
Kolbeinn bendir á að með reglulegum sánaböðum, tvisvar til þrisvar í viku, í að lágmarki 70 gráðu heitri sánunni megi minnka líkur á hjartaáfalli um allt að 23%. Og sé tíðnin aukin í 5-7 sinnum í viku megi minnka líkurnar í 58% miðað við að setið sé inni í 12-15 mínútur. Kolbeinn nefnir fleiri atriði um kosti sánabaðsins í pistlinum.
„Við sánaböð eykst blóðflæði um líkamann og um leið geta hjartans til að flytja súrefni. Við það lækkar blóðþrýstingur og þol eykst. Hitinn hefur fleiri jákvæð áhrif, þannig má draga verulega úr niðurbroti vöðvamassa, þar sem líkaminn eykur framleiðslu vaxtarhormóna verulega við hitaálagið. Svitinn sem líkaminn framleiðir til kælingar hjálpar um leið líkamanum til að losna við þungmálma sem safnast geta upp í líkamanum og valdið ómældum skaða. Rannsóknir hafa einnig sýnt fram á jákvæð áhrif á starfsemi heila og minnkandi líkur á heilablóðföllum. Og loks hafa sánaböð mjög góð áhrif á ónæmiskerfið.“
Kolbeinn endar svo bakþankapistil sinn á þessum orðum:
„Að öllu ofantöldu tel ég þó stundina þegar ég sest á brennheitan asparbekkinn og loka dyrunum að sánaklefanum hápunkt hvers dags. Með lokuð augun finn ég þakklætið renna heitt um æðarnar fyrir að hafa kynnst finnskri sánu.“