Kolbeinn Marteinsson skrifar um ástina í nýjum pistli í Fréttablaðinu. Hann segir að til sé kenning sem segir að við verðum aðeins ástfangin af þremur manneskjum á ævinni.
„Fyrsta ástin. Þetta ástarsamband á sér oftast stað þegar vð erum ung. Oft enda slík sambönd út af einhverju smáræði eða vegna þess að einstaklingarnir vaxa sitt í hvora áttina. Þegar við lítum til baka á þessa fyrstu ást gæti jafnvel læðst sú hugmynd að manni að kannski hafi þetta jafnvel ekki verið ástarsamband. En á þessum tímapunkti var þetta ást eins og við héldum að ást væri, saklaus og reynslulaus,“ skrifar Kolbeinn.
„Síðan er það ást númer tvö. Sú erfiða. Hér verðum við særð og upplifum oft mikla ástarsorg. Tilgangur þessa ástarsambands er að kenna og þroska okkur, gera okkur sterkari. Þetta samband getur falið í sér lygar, virðingarleysi, óheiðarleika, sársauka, svik og haft slæm áhrif á líf okkar til lengri tíma. En það er hér sem við vöxum og áttum okkur á því hvað það er sem við viljum og viljum ekki. Og kannski það mikilvægasta, þá lærum við hér muninn á slæmum og góðum maka.“
„Síðan er það þriðja ástin. Oft kemur þessi ást úr óvæntri átt og án þess að við leitum að henni, hún kemur til okkar fyrirhafnarlaust. Hlutirnir verða áreynslulausir og grundvallast af sterkum tilfinningum. Þriðja ástin er líka oft ólík þeim týpum sem við höfum laðast að áður. En sökum fyrri reynslu þá vitum við hvað við viljum og hvað ekki. Hér er maki sem við horfum í augun á og við sjáum fyrir okkur að giftast og stofna með fjölskyldu.“
„Ef þú býrð svo vel að eiga maka sem þú veist að þú vilt eyða með ævinni, skaltu láta maka þinn vita af því strax í dag og ræktaðu með þér þakklæti. Síðan máttu muna að allt á sér tilgang hér í þessu lífi, líka fyrrverandi makar,“ skrifar Kolbeinn að lokum.