Kolbeinn aldrei haft hærra tímakaup: Hvetur aðra til að gera það sama og hann gerði

Kolbeinn Marteinsson almannatengill segir frá því í bakþönkum Fréttablaðsins í dag að hann, líkt og svo margir aðrir, hafi lent í veseni með fjármál sín eftir Hrun.

„Stærsta vandamálið var kannski að ég hafði í raun ekkert spáð í fjármálin. Þegar efnahagslífið fór svo á hliðina urðu þessir veikleikar og skipulagsleysi að miklu stærra vandamáli,“ segir hann og bætir við að á hann hafi fallið skuldir og staðan verið erfið.

Í stað þess að leggja árar í bát ákvað Kolbeinn að setjast niður og skrá allar sínar skuldir og gera áætlun. Fyrst greiddi hann niður eitt lán, því næst yfirdrátt og svo koll af kolli.

„Í dag er húsnæðislánið fyrir utan námslánið eitt eftir. Ég lýsti yfir stríði við það lán fyrir nokkrum árum. Sú stríðsyfirlýsing felur í sér að ég ætla að ganga frá þessu láni eins hratt og örugglega og mér er frekast kostur. Þannig hef ég fært orrustuna frá viðskiptabanka mínum í lífeyrissjóð með það eitt að elta lægri, fasta, óverðtryggða vexti. Ég hef aldrei haft hærra tímakaup á ævinni en þegar ég stóð í að skuldbreyta húsnæðisláni okkar. Í dag er lánið aftur komið í viðskiptabanka minn töluvert veikara en fyrir nokkrum árum. Ég lít svo á að við fjölskyldan séum að sama skapi sterkari.“

Kolbeinn bendir á að húsnæðislánið sé stærsta skuldbinding okkar flestra. Þess vegna eigum við að gera allt sem við getum til að greiða þá skuldbindingu niður eins hratt og kostur er.

„Það hefur verið sagt að það sé hægt að reka þýska hagkerfið í nokkur ár á sparnaði Þjóðverja. Þangað ættum við líka að stefna. Það yrði mikill þjóðarhagur sem myndi skila sér í sterkara hagkerfi og betri andlegri líðan okkar allra,“ segir Kolbeinn sem endar pistilinn á þessum orðum:

„Leggðu því frá þér kaffibollann, lemdu hnefa í borð og lýstu yfir stríði við húsnæðislánið. Þú munt þakka þér fyrir það síðar.“