Skiptar skoðanir eru um þá ákvörðun stjórnvalda að hafa klukkuna hér á landi óbreytta. Þetta var tilkynnt á vef stjórnarráðsins í morgun en þar kemur fram að þessi ákvörðun hafi verið tekin eftir ítarlega skoðun á kostum og göllum þess að seinka henni um klukkustund.
„Niðurstaða ríkisstjórnarinnar er að skoðun á því hvort færa ætti staðartíma nær sólartíma á Íslandi hafi ekki leitt fram nægilega sterk rök til að réttlæta þá miklu breytingu sem felst í því að seinka klukkunni um eina klukkustund. Vegur þar þyngst að neikvæð áhrif fækkunar birtustunda á vökutíma og skerðingar birtustunda í lok dags sem dregið gætu úr útivist og hreyfingu eru ekki nægilega vel þekkt, en birtustundum hefði fækkað um 13% á ársgrundvelli með breytingunni,“ segir á vef stjórnarráðsins.
Meðal þeirra sem hafa kallað eftir því að klukkunni verði seinkað er Svefnrannsóknarfélagið. „Eins og staðan er í dag þá er klukkan hálfsex þegar við vöknum klukkan sjö á morgnana, miðað við sólargang,“ sagði dr. Erna Sif Arnardóttir, formaður Hins íslenska svefnrannsóknarfélags, í viðtali við Morgunblaðið árið 2017.
Margir hafa tjáð sig á samfélagsmiðlum um þessa nýjustu ákvörðun stjórnvalda. Hallgrímur Helgason rithöfundur segir til dæmis: „Það má engu breyta á Íslandi. Ekki einu sinni stilla klukkuna rétt.“ Gunnar Smári Egilsson, stofnandi Sósíalistaflokksins, segir að sitjandi ríkisstjórn sé ríkisstjórn stöðugleika og Helga Vala Helgadóttir, þingmaður Samfylkingarinnar, segir að þessi ákvörðun hljóti að kalla á blaðamannafund, jafnvel tvo.
„Mikil vonbrigði,“ segir Erla Björnsdóttir í athugasemd á þræði Hallgríms en hún er stofnandi og stjórnarformaður Betri svefns. Erla skrifaði auk þess bókina Svefnþar sem hún fjallaði meðal annars um svefnvandamál.
Jón Trausti Reynisson, ritstjóri Stundarinnar, segir að nú sé ástæða til að fagna en hann skrifaði pistil um málið í febrúar 2019 sem vakti talsverða athygli. „Í stuttu máli hefði breytingin þýtt að sólsetrið yrði klukkan 19.41 í staðinn fyrir 20.41. Nú er bara um að gera að nýta vel þennan klukkutíma í birtu sem bjargaðist í dag og aðra daga,“ segir Jón Trausti í færslu á Facebook-síðu sinni.
Sjónvarpsmaðurinn Egill Helgason svarar því til í þræðinum að það sé samt dálítið skrýtið að búa í borg þar sem hádegi er klukkan hálf tvö. Egill segist þó aldrei hafa haft mikla skoðun á þessu. „En hugsaði þetta á sumarsólstöðum þar sem ég dáðist að því að enn var skjannabjart þótt komið væri miðnætti samkvæmt klukkunni.“