Klemmdi manninn á milli tveggja stórra bíla: „Mér skilst að ég hafi hótað að drepa hann“

Héraðs­dómur Reykja­ness hefur dæmt karl­mann í fjögurra mánaða fangelsi, skil­orðs­bundið í þrjú ár, fyrir líkams­á­rás. Málið er allt hið ó­venju­legasta en at­vikið átti sér stað þann 24. septem­ber 2019.

Í á­kæru kemur fram að maðurinn hafi ekið vöru­bif­reið hægt upp að öðrum manni og klemmt hann á milli vöru­bif­reiðar og sendi­bif­reiðar. Af­leiðingarnar voru þær að fórnar­lambið hlaut mjúk­parta­á­verka á baki, mar á hendi og hné. Ekki var um al­var­lega á­verka að ræða en sam­kvæmt læknis­vott­orði var búist við því að maðurinn næði fullum bata.

„Hátt­semi á­kærða var hættu­leg en hann klemmdi brota­þola á milli tveggja stórra bif­reiða og hefði hæg­lega getað valdið brota­þola meira líkams­tjóni en raunin varð,“ segir í dómi héraðs­dóms.

Hvað ná­kvæm­lega varð til þess að sam­skipti mannanna enduðu með þessum hætti liggur ekki ljóst fyrir sam­kvæmt dómi héraðs­dóms. Sam­kvæmt skýrslu brota­þola hjá lög­reglu varð eitt­hvað til þess að hinn á­kærði byrjaði að öskra á brota­þola sem þá hafi séð svart og sturlast. Þeir hafi farið að rífast, brota­þoli stokkið út úr bif­reið sinni og öskrað á á­kærða. Síðan er haft eftir brota­þola: „Mér skilst að ég hafi hótað að drepa hann eða berja hann eða hvað sem það var.“

Fram kemur að hinn á­kærði í málinu hafi hringt í Neyðar­línuna og óskað eftir lög­reglu þar sem verið væri að ráðast á hann og hóta honum líf­láti. Dómari hlustaði á upp­tökur af sím­tölum á­kærða og brota­þola við Neyðar­línu og lög­reglu og telur dómari að af þeim megi ráða að á­kærða hafi staðið ógn af brota­þola. Hvað sem því líður var öku­maður vöru­bílsins sak­felldur og dæmdur til greiðslu miska­bóta.

Fjögurra mánaða fangelsis­dómurinn er sem fyrr segir skil­orðs­bundinn til þriggja ára. Auk þess var honum gert að greiða manninum sem klemmdist 400 þúsund krónur í skaða­bætur, laun verjanda síns, 250 þúsund krónur, laun réttar­gæslu­manns brota­þola, 124 þúsund krónur og annan sakar­kostnað, 47 þúsund krónur.