Bára Halldórsdóttir, segir að hún geti engu umhverfi treyst í kjölfar afléttinga á sóttvarnartakmörkunum.
Bára, sem varð þjóðþekkt fyrir það að ljóstra upp um Klaustursmálið, segir á Twitter síðu sinni að Íslendingar hafi sleppt af sér beislinu: „Ég bíðandi meira og meira eftir öllum úrræðum og hamlaðri í almennum hlutum vegna þess að fólk er orðið svo chillað að ég get engu umhverfi treyst,“ segir Bára.
Deilir hún þar Twitter færslu Tinnu nokkurrar. Sú hefur fengið sig fullsadda af gagnrýni á Þórólf Guðnason sóttvarnarlækni: „Náinn aðstandandi minn er á gjörgæslu með Covid. Biðst ekki afsökunar á að vera grimm á mute takkanum á allt sem snýr að fReLsI og að Þórólfur sé einhver vondi kall.“
Þetta er ekki í fyrsta sinn sem Bára talar um sóttvarnarmál á Twitter. Hún sendi frá sér þessa færslu fyrr í mánuðinum: „Var að tala við ömmu áðan. Við erum báðar líkamlega einangraðar. Alltaf einhver að hringja eða kíkja í heimsókn til hennar. Ég öfunda hana, fólk gleymir langveikum hægt og rólega og eina tenging mín við umheiminn er random internetorka.“
Þórólfur hefur verið harðlega gagnrýndur undanfarið af stórum hópi Íslendinga sem krefjast afléttingar eða vægari samkomutakmarkanna. Þykja mörgum, í ljósi fárra innlagna á spítölum vegna Covid-19 og hás hlutfalls bólusettra, að tími sé til kominn að hleypa lífinu aftur í eðlilegt horf.
Greinilegt er að það deila ekki allir þeim hugsjónum, ef marka má orð Báru og Tinnu.