Klara: Peningunum var dælt í okkur

„Það var búið að dæla í okkur peningum, en svo er bara eitt­hvað árs­fjórðungs­upp­gjör hjá plötu­fyrir­tækinu og peningurinn búinn og á­kveðið að setja hann í aðra lista­menn,“ segir Klara Eli­as, söng­kona og laga­höfundur, sem er nýjasti gesturinn í Pod­cast­þætti Sölva Tryggva­sonar.

Eftir að hafa verið með líf sitt nánast í raun­veru­leika­þætti fyrir framan al­þjóð á Ís­landi fór hljóm­sveitin Nylon í víking og gerði frá­bæra hluti í Bret­landi. Eftir það lá leiðin til Los Angeles, þar sem Klara hefur verið síðasta ára­tuginn. Þær Klara, Alma og Steinunn gerðu stóran plötu­samning og gerðu plötu sem mikið hafði verið lagt í þegar á­kveðið var að setja hana á bið og á endanum ofan í skúffu:

„Það var heil plata til­búin sem fór ofan í skúffu og ,,singlarnir” voru mjög flott lög sem Bruno Mars og teymið hans sömdu með okkur. Þannig að það er ofan í skúffu plata sem við unnum með Bruno Mars og auð­vitað er það skrýtið að hafa aldrei fengið að gefa hana út. En rétturinn er allur hjá plötu­fyrir­tækinu.“

Klara segir að á tíma­bili hafi þær vin­konurnar verið orðnar skil­greiningin á fá­tækum lista­mönnum, þegar staðan er þannig að þú veist í raun ekki hvort þú getur borgað reikningana í lok mánaðar.

„Við bjuggum saman þrjár í eins her­bergis íbúð, en það skorti aldrei ást­ríðuna og okkur leið alltaf mjög vel saman í litlu í­búðinni okkar. En við sóttum okkur öll þau „gigg“ sem voru í boði og gerðum allt til að lifa af listinni. Ég var oft að aug­lýsa á „cra­igs­list“ og sá einu sinni aug­lýsingu þar frá armenskri popp­stjörnu sem var að leita að söng­konu til að syngja með sér. Þetta var mjög vel borgað og ég hafði sam­band og fékk strax svar og fór svo og söng með honum í stúdíói. Hann á armensku og ég á ensku. Mjög lé­lega þýddan enskan texta. En þetta gigg borgaði leiguna þann mánuðinn fyrir okkur allar. Svo í kjöl­farið sló þetta svo í gegn að ég var orðin fræg í Armeníu og söng í mjög mörgum brúð­kaupum og veislum í sam­fé­lagi Armena í Los Angeles eftir þetta. Hann vildi reyndar aldrei syngja, heldur alltaf „mæma“, þannig að við komum oft fram saman og mæmuðum fyrir mann­skapinn.”

Klara, sem varð þjóð­þekkt fyrir tví­tugt sem söng­kona í hljóm­sveitinni Nylon hefur búið í Los Angeles um ára­bil, en segir stemmninguna þar hafa farið að súrna veru­lega á árinu 2020, bæði út af Co­vid-far­aldrinum, miklum ó­eirðum og sundrung í banda­rísku sam­fé­lagi. Það varð til þess að hún á­kvað að koma heim í haust:

„Þetta hljómar kannski ekki stórt þegar maður er að lýsa því, en þegar þú ert svona langt í burtu og veist ekkert hvernig hlutirnir eru að fara að þróast fær maður heim­þrá. Ég upp­lifði stöðuna á tíma­bili í Los Angeles eins og stríðs­á­stand og ofan á það bættist að maður hugsaði hvað maður ætti að gera ef ein­hver í fjöl­skyldunni myndi veikjast illa. Ofan á það var alltaf verið að fella niður flug og í tals­verðan tíma vissi maður ekkert hvort maður kæmist heim. Maður upp­lifði sig fastan og þetta var bara mjög skrýtið á­stand. Á ein­hvern hátt upp­lifir maður á­standið þarna stundum eins og það sé ekki langt í borgara­styrj­öld. Rosa­leg ,,pólarísering” og miklar ó­eirðir og bara tvær þjóðir í einu landi. Þessar ó­eirðir síðasta vor í Banda­ríkjunum voru rosa­legar, það voru vopnaðir lög­reglu­menn á hverju götu­horni og allar rúður brotnar í öllum búðum og enginn á götunum. Annað hvort af því þú mátt ekki fara úr húsi út af co­vid, eða af því að það eru svo miklar ó­eirðir. Við búum í hjarta Hollywood og þar fann maður rosa­lega fyrir þessu. En það er búið að vera á bak­við eyrað hjá mér í tals­verðan tíma að koma heim og það hefur örugg­lega spilað inn í líka. Ein­hver partur af mér er búinn að vera til­búinn í breytingar í tals­verðan tíma.”

Í þættinum, sem má sjá í heild hér að neðan, ræða Sölvi og Klara um Nylon ferða­lagið, ást­ríðuna fyrir tón­listinni, stöðuna í Banda­ríkjunum og margt fleira.