KK: „Brenni­vín og dóp var lausn á van­líðan“

Tón­listar­maðurinn Kristján Kristjáns­son, betur þekktur sem KK, er gestur Sig­mars Guð­munds­sonar í þættinum Okkar á milli á RÚV í kvöld.

KK er einn af okkar ást­sælustu tón­listar­mönnum en í þættinum ræðir hann meðal annars um yngri ár sín þegar glíma við vímu­efni setti svip á líf hans. Hann hefur verið edrú um langt skeið en í við­talinu segist hann hafa verið svart­sýnn á til­veruna án vímu­efna. Hann hafi verið að flýja leiðindin og ekki liðið vel edrú.

„Brenni­vín og dóp var lausn á van­líðan. Það var of­boðs­leg van­líðan í edrú­mennskunni. Þegar maður fékk sér eitt­hvað opnaðist heimurinn og allt varð æðis­legt,“ segir hann og bætir við að hann hafi aldið að það væri ekkert líf án þess að drekka og dópa. „En það er þver­öfugt,“ segir hann og sér ekki eftir því að hafa látið staðar numið.

„Mig langar ekki að breyta lífi mínu úr þessu. Mig langar ekki að fá mér hug­breytandi efni. Ég er með önnur tæki til að ná góðum fíling.“