Kjartan vann fullnaðarsigur gegn Reykja­víkur­borg: „Ég er í skýjunum“

Kjartan Ólafs­son, 25 ára þroska­hamlaður maður með Downs-heil­kenni, vann í vikunni fullnaðar­sigur í máli sínu gegn Reykja­víkur­borg. Þetta kemur fram ífrétt Frétta­blaðsins.

Málið höfðuðu for­eldrar Kjartans, fyrir hans hönd, í apríl 2020 vegna verk­lags borgarinnar í kringum bið­lista fatlaðra eftir hús­næði með þjónustu. Héraðs­dómur Reykja­víkur dæmdi Kjartani í hag 16. júní 2021 en borgin gat ekki unað dóminum og á­frýjaði til Lands­réttar. Málið var á dag­skrá Lands­réttar á morgun, föstu­dag, en borgin á­kvað í vikunni að falla frá á­frýjun sinni og una dómi héraðs­dóms.

For­dæmis­gefandi niður­staða
Flóki Ás­geirs­son, lög­maður Kjartans, fagnar niður­stöðunni og segir hana mjög for­dæmis­gefandi fyrir fatlaða ein­stak­linga sem enn eru á bið­listum borgarinnar. „Niður­staðan felst í því að verk­lagið við bið­listana stenst ekki lög,“ segir Flóki og bætir við að grund­vallar­á­stæðan sé sú að bið­listarnir hafi ekki falið í sér neina röðun um­sækj­enda.

Þeir hafi allir verið settir í bið­flokk og út­hlutun hverju sinni hafi verið gerð á mjög ó­ljósum for­sendum. „Bið­tíminn virðist ekki hafa skipt neinu máli,“ segir Flóki. Ein­staklingar hafi allt eins getað átt von á ó­endan­legri bið og að­ferða­fræðin standist ekki lög.

Frétta­blaðið fjallaði um mál Kjartans og for­eldra hans í maí síðast­liðnum en hann hefur verið á bið­lista eftir hús­næði með þjónustu á vegum borgarinnar í sjö ár. Þau höfðu lengi leitað svara hjá borginni um hvar Kjartan væri á bið­listum og hve­nær hann gæti átt von á út­hlutun en svör voru aldrei á reiðum höndum.

Ragn­heiður Gunnars­dóttir, móðir Kjartans, segir niður­stöðuna mikinn sigur fyrir alla. „Ég er í skýjunum fyrir hönd Kjartans og að Reykja­víkur­borg skuli átta sig á þessu. Það geta allir breytt betur og það er verið að taka tíma­móta­á­kvörðun um að viður­kenna rétt fatlaðra á að vita hve­nær þeir fá bú­setu. Hvort sem það er eftir eitt ár eða tíu. Það fá ekki allir bú­setu á morgun en það skiptir máli að fá þetta svar.“

Ólafur Hilmar Sverris­son, faðir Kjartans, tekur undir með Ragn­heiði. „Þetta er mikið gleði­efni og niður­staða sem maður átti alls ekki von á, því það var búið að á­frýja,“ segir Ólafur og bætir við að borgin sýni kjark með því að stíga til baka.

Frétta­blaðið leitaði til borgar­lög­manns í byrjun vikunnar vegna málsins og fékk þau svör að borgin tjáði sig al­mennt ekki um dóms­mál á meðan þau væru enn til með­ferðar við dóm­stóla.

Síðar sama dag sam­þykktu for­eldrar Kjartans boð frá borginni um íbúð fyrir hann og í sömu and­rá barst Flóka til­kynning frá borgar­lög­manni um að borgin hefði á­kveðið að falla frá á­frýjun sinni. Frétta­blaðið óskaði því aftur svara í gær og þegar blaðið fór í prentun höfðu engin svör borist.