Kjartan: Snjóruðningur í borginni í tómu rugli – Á að þrengja frekar að einkabílnum?

Kjartan Magnússon, fyrrverandi borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins og frambjóðandi flokksins fyrir komandi kosningar, gagnrýnir meirihlutann harðlega fyrir það hvernig staðið hefur verið að snjómokstri undanfarna daga.

Kjartan skrifar harðorða grein í Morgunblaðið í dag þar sem hann segir engu líkara en að Dagur B. Eggertsson borgarstjóri hafi grafið sig í fönn meðan gagnrýnin var sem hæst.

Nyrsta höfuðborg heims

„Undanfarnar vikur hafa Reykvíkingar kynnst getuleysi borgaryfirvalda gagnvart því grunnhlutverki að tryggja að fólk komist með góðu móti til og frá heimilum sínum,“ segir Kjartan sem bendir á að snjóað hafi með hléum í tvær vikur en gott ráðrúm gefist til hreinsunar á milli. Það ráðrúm hafi borgaryfirvöld ekki nýtt vel.

„Í nyrstu höfuðborg jarðar ætti tuga sentimetra snjódýpt ekki að koma á óvart. Allra síst yfirstjórn borgarinnar, sem ber ábyrgð á snjóruðningi gatna, gangstétta, göngu- og hjólreiðastíga. Snjór virðist þó koma sjálfum borgarstjóranum í opna skjöldu miðað við það ófremdarástand, sem ríkt hefur í rúma viku í mörgum húsagötum og á gangstéttum.“

2-3 dagar ættu að duga

Kjartan segir að enginn ætlist til þess að í mikilli ofankomu sé hvert einasta snjókorn hreinsað jafnóðum af öllum götum og gangstéttum borgarinnar. Áhersla sé lögð á að halda stofnbrautum og strætisvagnaleiðum opnum og síðan svokölluðum tengigötum eftir því sem unnt er.

„Í mikilli ofankomu hefur ruðningur í húsagötum oft mætt afgangi í örfáa daga á meðan verið er að ná tökum á ástandinu. Þegar forgangsleiðir hafa verið tryggðar ætti að vera hægt að ganga rösklega til verks í húsagötum. Ég hef rætt við aðila sem hafa mikla þekkingu og áratuga reynslu af snjóhreinsun í borginni. Er það álit þeirra að miðað við það snjómagn, sem við var að eiga í borginni í síðustu viku, hefðu 2-3 dagar átt að duga til að ná tökum á ástandinu ef vel hefði verið staðið að stjórnun og skipulagi snjóhreinsunar. Sem var því miður ekki raunin.“

Nákvæmlega það sem hefur gerst

Kjartan bendir á að frammistöðuleysi borgarinnar við snjóhreinsun hafi að undanförnu verið helsta umræðuefni á samfélagssíðum íbúasamtaka, ekki síst í efri hverfum.

„Mörgum varð ekki að þeirri ósk sinni að húsagötur og göngustígar yrðu skafin og hreinsuð þegar tekist hafði að tryggja færð á stofnbrautum og strætóleiðum. Viku eftir að snjókoman var sem mest var enn kvartað yfir því að snjóruðningstæki hefðu ekki sést í fjölda húsagatna,“ segir hann.

Kjartan veltir fyrir sér hvers vegna þetta er svona því snjóhreinsunarfræðin séu í sjálfu sér ekki flókin vísindi.

„Það skiptir meginmáli að setja sem mestan kraft í verkið á meðan snjórinn er nýfallinn því þá er hann yfirleitt auðruddur og meðfærilegur. Eftir því sem lengri tími líður frá snjókomu verður erfiðara að eiga við hjarnið, sérstaklega ef tíðin er rysjótt eins og hún er gjarnan í Reykjavík. Þá blotnar fönnin og frýs til skiptis og verður erfið viðureignar eins og margir þekkja. Þetta er nákvæmlega það sem hefur víða gerst í Reykjavík undanfarna viku.“

Snjall leikur Dags?

Kjartan gagnrýnir borgarstjóra, Dag B. Eggertsson, harðlega og segir hann hafa farið í felur. Það sé ekki í fyrsta skipti sem það gerist því Dagur leggi það í vana sinn að fara í felur þegar „klúður“ kemur upp á hans vakt.

„Í síðustu viku var engu líkara en hann hefði grafið sig í fönn. Þess í stað voru millistjórnendur, sem bera enga pólitíska ábyrgð, sendir til að svara fyrir áðurnefnt ófremdarástand. Sú spurning vaknar hvort slík frammistaða sé tilviljun. Er hin arfaslaka snjóhreinsun í húsagötum Reykjavíkur e.t.v. snjall leikur borgarstjórans til að þrengja að hinum hræðilega fjölskyldubíl?“