Kjartan sendir skopmyndateiknara Moggans pillu – Sjáðu myndina í blaði dagsins

Kjartan Hreinn Njálsson, aðstoðarmaður landlæknis og fyrrverandi fjölmiðlamaður, sendir Helga Sigurðssyni, skopmyndateiknara Morgunblaðsins, væna pillu á Twitter-síðu sinni.

Helgi hefur látið ýmislegt flakka í skopmyndum sínum á síðu 8 í Morgunblaðinu að undanförnu og snúast teikningarnar oftar en ekki um kórónuveiruna og baráttuna gegn henni. Í fyrra birtist til að mynda umdeild teikning þar sem ósonmeðferð var sögð lækna COVID-19 og í dag er spjótum beint að Ivermectin eins og myndin hér að neðan sýnir.

Þórður Snær Júlíusson, ritstjóri Kjarnans, hefur verið gagnrýninn á teikningar Helga og deilir hann teikningunni á Twitter-síðu sinni með þessum orðum: „Jæja...“

Kjartan Hreinn deilir tísti Þórðar og segir: „Góðu fréttirnar eru að Pfizer verður líklega heimilað fyrir yngri börn og þá getur skopmyndateiknari Mbl fengið sína sprautu.“