Kjartan Jóhanns­son er látinn

Kjartan Jóhanns­son, fyrr­verandi stjórnar­mála­maður og ráð­herra, er látinn. Kjartan lést á heimili sínu á föstu­dag en hann fæddist þann 19. desember árið 1939.

Greint er frá and­láti hans í Morgun­blaðinu í dag.

Kjartan varð stúdent frá MR 1959, lauk prófi í bygginga­verk­fræði í Stokk­hólmi árið 1963 áður en hann aflaði sér fram­halds­menntunar í rekstrar­verk­fræði. Hann lauk doktors­prófi frá Chi­cago árið 1969.

Hann var bæjar­full­trúi í Hafnar­firði 1974-1978, vara­for­maður Al­þýðu­flokksins 1974-1980 og for­maður flokksins árin 1980-1984. Hann sat á þingi frá 1978-1989, var sjávar­út­vegs­ráð­herra 1978-1979 og við­skipta­ráð­herra í minni­hluta­stjórn Al­þýðu­flokksins frá því síðla árs 1979 og fram í febrúar 1980.

Eftir þing­setu var Kjartan skipaður sendi­herra árið 1989 og gegndi hann stöðu fasta­full­trúa Ís­lands gagn­vart Sam­einuðu þjóðunum í Genf til 1994. Utan­ríkis­ráð­herrar EFTA-landanna völdu hann svo fram­kvæmda­stjóra sam­takanna og gegndi hann því starfi til ársins 2000. Hann var síðan fasta­full­trúi Ís­lands í Brussel gagn­vart ESB frá 2002-2005.

Eftir­lifandi eigin­kona Kjartans er Irma Karls­dóttir, fædd 1943. Dóttir þeirra er María Eva Kristína, við­skipta­fræðingur og hag­fræðingur, bú­sett í Banda­ríkjunum.