Kjartan Magnússon borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins fær ekki skrifstofu til afnota í ráðhúsinu þar sem beiðni hans var hafnað af forsætisnefnd Reykjavíkurborgar á fundi nefndarinnar fyrir helgi.
Morgunblaðið greinir frá þessu. Kjartan var áður borgarfulltrúi frá 1999 til 2018 og tók sér hlé í fjögur ár. Hann bendir á að í 1.mgr. 5.gr samþykktar um kjör og starfaðstöðu leggi borgin hverjum fulltrúa til skrifstofu.
Í svar frá meirihlutaflokkunum í Framsókn, Samfylkingu, Viðreisn og Pírötum kemur fram að borgarfulltrúar hafi nú aðgang að skrifstofum í Tjarnargötu 12.
Marta Guðjónsdóttir, var ekki sátt með þessi málalok og bókaði að borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokks teldu að starfsaðstaðan væri algjörlega óásættanleg og hvorki í samræmi við samþykktir um kjör og starfsaðstöðu kjörinna fulltrúa hjá Reykjavíkurborg né lög um aðbúnað, hollustuhætti og öryggi á vinnustöðum.