Þorkell Sigurlaugsson viðskiptafræðingur verður gestur Björns Jón Bragasonar í þættinum Sögu & samfélagi í kvöld á Hringbraut. Umfjöllunarefnið er skipulag miðbæjar Reykjavíkur og Vatnsmýrin, en Þorkell þekkir þessi mál frá þremur hliðum. Hann var framkvæmdastjóri hjá Eimskip um áratugaskeið og sat fyrir hönd stærri fyrirtækja í miðbænum í Miðborgarstjórn á sínum tíma. Þá var hann framkvæmdastjóri hjá Háskólanum í Reykjavík þegar ákvörðun var tekin um uppbyggingu í Vatnsmýri. Einnig hefur hann látið málefni Landsspítalans mjög til sín taka.
Þorkell telur að verulega skorti upp á yfirsýn, hugsjón og framtíðarsýn fyrir Reykjavík í heild. Borgin þurfi að horfa til skemmri tíma, þ.e. 20 og 30 ára, en líka út þessa öld. Auðvitað sé ekki hægt að spá fyrir um framtíðina með vissu en menn þurfi að vita hvert þeir vilji stefna og ræða um það við borgarbúa.
Sér í lagi skipti þetta máli í sambandi við atvinnuuppbyggingu til framtíðar. Reykjavíkurborg og höfuðborgarsvæðið allt þurfi að vinna með stjórnvöldum í tengslum við Nýsköpunarárið 2020 og Nýsköpunarlandið Ísland sem ríkisstjórnin hefur sammælst um vinna og búa til öflugt atvinnulíf á 21. öldinni á svæði þar sem nálægt tveir þriðju þjóðarinnar býr.
Hér þurfi að horfa sérstaklega á Vatnsmýrarsvæðið. Að mati Þorkels hefur ekki ríkt nægur skilningur á mikilvægi þess að sú starfsemi sem tengist háskólunum, vísindum og rannsóknum sé í nálægð hver við aðra á höfuðborgarsvæðinu. Það sé ekki að ástæðulausu að vísindaþorp, tæknigarðar og heilu háskólahverfin hafi orðið til erlendis. Grípum niður í orð Þorkels:
„Kísildalurinn er dæmi um svæði þar sem gífurlega nýsköpun og tæknibylting var sem hefur stuðlað að ótrúlegum tækniframförum um allan heim. Það er ekki síst nálægðin, fjölbreytnin og öflugt frumkvöðla- og nýsköpunarstarf sem skýrir þá byltingu. Við eigum okkar Vatnmýrardal.“
Saga & samfélag á Hringbraut í kvöld kl. 21.30.